Smá skipulag og undirbúningur í matargerðinni sparar þér gífurlegan tíma í gegnum vikuna og þarf alls ekki að vera tímafrekt eða flókið!
Skothelt matarskipulag er jafnframt lykillinn að halda sér við hollt mataræði og falla síður fyrir freistingum og skyndibita.
Það er heldur ekkert unaðslegra en að opna ísskáp eða kæli fullan af hollum mat í snyrtilegum ílátum sem bíður eftir að fylla þig orku og ljóma! Þannig viljum við mæta sumrinu ekki satt?
Í matarskipulagið hef ég sett saman nákvæmlega hvað ég geri þegar ég á sérstaklega annríkar vikur með uppskriftum fyrir morgunmat, hádegismat og kvöldmat sem endast í allt að 5 dögum! Allt á klukkustund!
Fáðu skipulagið og uppskriftir ókeypis hér! Hentar það vel fyrir annríkar vikur heima, útilegur, ferðalög eða lautarferðir!
Hér setti ég saman einfalt laxasalat með grillsósunni, blómkálsvængjum og salati. Ótrúlega saðsöm og góð blanda.
Skráðu þig hér fyrir skipulagið - og uppskriftir sem ég deili hvergi annarstaðar!
Í matarskipulaginu finnur þú að auki sniðug ráð frá mér um geymslutíma og geymsluaðferðir!
Lautarferðir eru skemmtilegar í sumar. Ég tek gjarnan með mér þessa rétti í góðri kælitösku fyrir matinn.
Þú gætir síðan hlakkað til að hefja haustið orkumeiri, léttari og full vellíðan með Nýtt líf og Ný þú 4 mánaða lífsstílsþjálfun sem við hjá Lifðu til fulls hefjum í haust.
Engar áhyggjur ef þú veist ekki hvar þú ættir að byrja því ég mun leiða þig skref fyrir skref að skapa lífsstíl sem virkar fyrir þig! Færðu algjört skipulag, áætlanir, matseðla og hugarvinnu sem gerir þér kleift að fara lengra en þú hefur nokkru sinni áður með heilsuna!
Þangað til vona ég að þú eigir hollt og skemmtilegt sumar saman! Það þýðir ekkert annað!
Heilsa og hamingja,