Grískur rækjukokteill með vatnsmelónu, ólífum og fetaosta-sósu
Aðalréttur fyrir 4
200 g jöklasalat (Iceberg)stökkt og ferskt,, skorið í þunna strimla
200 g klettasalat
500 g rækjur
200 g vatnsmelóna (skorin í grófa bita)
20 stk svartar ólífur
8 stk kirsuberja tómatar (skornir í tvennt)
1 stk rauðlaukur (skorin í fína strimla)
4 stk radísur (skornar í þunnar sneiðar)
Aðferð:
Raðið þessu skemmtilega saman á diska eða fat eftir smekk og dropið smá ólívuolíu, sítrónusafa og nýmuldnum svörtum pipar yfir salatið rétt fyrir framsetningu.
Fetaosta-sósa
1 krukka fetaostur í kryddolíu (250 g)
2 msk grískur jógúrt
1 tsk dijon sinnep
1 stk rauður chili (kjarnhreinsaður og saxaður í fína strimla)
1/3 tsk cumminduft
1 stk hvítlauksgeiri (maukaður eða fínt saxaður)
1 msk ferskt oregano (fínt saxað)
Aðferð:
Setjið alla krukkuna (ostinn og olíuna) ásamt gríska jógúrtinum, sinnepinu,hvítlauknum og cummininu í matvinnslukönnu og blandið vel saman þar til mjúk sósa, bætið chili og oreganoinu saman við og smakkið með salti, pipar og sítrónusafa, látið standa í ca. 1 klst fyrir notkun.
Berið fram með góðu brauði