Dásemdar salat hér á ferð.
Stútfull skál af hollustu.
Innihald: / 250 ml heil hveitikorn / 1 dós kjúklingabaunir / 1/2 dós fetaostur / 1 krukka grilluð rauð papríka / 1 poki klettasalat / 2 tómatar / 100 g furuhnetur / 1 1/2 msk ólífuolía / smá sítrónusafi / salt og pipar.
- Leggið heilu hveitikornin í bleyti yfir nótt.
- Skolið af kornunum og setjið í pott ásamt 5 dl að vatni. Látð suðuna koma upp og sjóðið í 1 klst.
- Skerið niður grilluðu papríkuna og tómatana og setjið í skál.
- Bætið kjúklingabaununum, fetaostinum, klettasalatinu og furuhnetunum út í ásamt tilbúnu hveitikornunum.
- Þið ráðið hvort þið notið olíuna af fetaostinum eða hellið saman ólífuolíu, sítrónusafa, salti og pipar og skellið yfir salatið.
- Gott er að láta þetta salat standa í amk klukkustund í kæli og bera svo fram.
Ég fór einu sinni fyrir mörgum árum á matreiðslunámskeið í Manni Lifandi og þar kynntist ég að nota heil hveitikorn sem mér hafði ekki dottið í hug áður að nota í salat. Þau fást í næstu heilsubúð og eru gæðakolvetni og trefjarík.