Saltfiskpizza er gríðavinsæl í Suður Evrópu og Mið- og Suður Ameríku og þykir saltfiskur þar sem álegg á pizzu eins sjálfsagður og pepperoni á Íslandi. Hér er einföld uppskirft að saltfiskpizzu sem við fáum hreinlega ekki nóg af.
Skerið saltfiskinn niður í fína bita og látið marinerast í hvítlauksolíunni í um hálfa klukkustund.
Hnoðið saman og látið deigið lyfta sér í ca. hálftíma á hlýjum stað
Brytjið tómatana, laukinn og ólífurnar.
Þegar deigið hefur lyft sér er það flatt út og smurt með pizzusósunni – saltfiskurinn, tómatarnir, laukurinn og ólífurnar sett ofaná og ostinum stráð yfir.
Bakið í vel heitum ofni í ca. 30 mínútur.
Berið fram með Sweet Chili sósu.
Verði ykkur að góðu!
Uppskrift af síðu ektafiskur.is