Þá er kaffitíminn tilbúin :)
Þarf bara að fá að kólna vel í ísskápnum.
Hlakka til að gæða mér á þessum Gulrótaköku kúlum.
Þetta eru hrákökur og alveg hræðilega hollar :)
Var að stússa við þetta í morgunsárið.
Gulrótaköku bitar.
2-1/4 bolli rifnar Gulrætur
12 stórar Döðlur
2/3 bolli Kókos mjöl/flögur
1/2 bolli Valhnetur eða Pekan hnetur
1/2 bolli sólblóma fræ
1 tsk. Kanill
1/4 tsk. rifin Engifer
2 tsk. Agave sýróp
smá salt af hnífsoddi....ég nota súkkulaði salt frá Urtu.
Aðferð blandið öllu saman í matvinnsluvél.
Vinnið vel og gerið gott deig.
Þá er að móta kúlur og rúlla upp úr því sem á að nota utan á kúlurnar
Það sem fer utan á kúlurnar.
Sesam fræ
Kókos mjöl eða flögur
Möndlur
Kælið í um klukkutíma.
Njótið með kaffinu