Ég hef alltaf verið svolítið veik fyrir sætindum svo þegar líður að hátíðum grípur mig alltaf löngun að útbúa holla konfektmola og smákökur.
Samsetningin af myntu og súkkulaði er ómótstæðileg í mínum huga enda inniheldur tvennt af mínu allra uppáhalds… Myntu og súkkulaði!
Þessar hráfæðis súkkulaðiþynnur eru úr dökku, bragðmiklu súkkulaði og fylltar með myntu- og kókosfyllingu… Ekkert annað en ljúffeng leið að njóta sætinda á hollan hátt.
Það er afar einfalt að útbúa þær og spennandi að eiga í frysti til að stelast í.
Fyrir ykkur sem hafa áhuga á að læra um sykurlausa konfekt og desertgerð var ég að opna fyrir sykurlausu desert og konfekta myndbandsnámskeið með mér! Lestu betur um þau hér!
1 bolli kókosmjöl
1/2 bolli kasjúhnetur (lagðar í bleyti í 5 klst eða yfir nótt)
2 msk kakósmjör, brætt
3 msk hlynsíróp
1 tsk stevia með piparmyntubragði (eða bætið við 1 tsk til viðbótar af hlynsírópi)
2 dropar piparmynta
1/2 bolli kakósmjör
1/2 bolli ósætað kakó
1/4 bolli hlynsíróp
4 tsk stevía með piparmyntubragði (eða notið 1 dropa af piparmyntu)
klípa af salti
1. Byrjið á að útbúa myntufyllingu með því að bræða kakósmjör yfir vatnsbaði. Hrærið þá saman kókosmjöli og kasjúhnetum í blandara þar til kekkjalaust. Bætið afgangs hráefnunum við þar til silkimjúkt. Varið þó að hræra deigið of mikið þar sem það gæti stífnað.
2. Hellið í botninn á hefðbundnum múffuformum og frystið á meðan þið útbúið súkkulaðið.
3. Hrærið öll hráefnin saman í súkkulaðið með písk þar til silkimjúkt. Það má einnig bræða kakósmjör í potti og hræra síðan öllu saman í pottinum. Einnig er hægt að kaupa sykurlaust súkkulaði sætað með steviu (t.d frá Balance) og bræða.
4. Takið næst myntu fyllinguna sem er í fyrsti og hellið súkkulaði yfir á aðra eða báðar hliðarnar. Frystið í 1-2 klst til viðbótar.
5. Njótið sem algjört konfekt!
Fyrir ykkur sem viljið læra um sykurlausa konfekt- og desertgerð mæli ég með að kíkja á námskeiðið hjá mér hér.
Námskeiðið fer fram í þínu eigin eldhúsi! Í formi myndbanda með mér, með nýjum og einföldum uppskriftum og stuðning í gegnum Facebook. Lærir þú um náttúrulega sætugjafa sem gott er að nota og hvernig á að gera hollt konfekt, hrákökur og deserta sem allir elska!
Ef þér líkar dökkt súkkulaði, endilega deildu á samfélagsmiðlum!
“Sjáumst” vonandi á sykurlausa konfekt- og desert námskeiðinu!
Heilsa og hamingja,