Það er búið að vera fanta gott veður og mikið stuð um land allt þessa helgina. Pollamót á Akureyri, Mandlan með þeim Svala&Svavari K100 á Flúðum og Goslokahátíðí Eyjum. Það er eins gott að trappa sig aðeins niður eftir grill svall og hugsanlega áfengi og njóta hollustunnar í komandi viku. Ef kviðurinn er eitthvað útblásin eftir helgina þá finnur þú góðan drykk hér fyrir neðan til að draga aðeins úr því.
Það er búið að vera fanta gott veður og mikið stuð um land allt þessa helgina. Pollamót á Akureyri, Mandlan með þeim Svala&Svavari K100 á Flúðum og Goslokahátíðí Eyjum. Það er eins gott að trappa sig aðeins niður eftir grill svall og hugsanlega áfengi og njóta hollustunnar í komandi viku. Ef kviðurinn er eitthvað útblásin eftir helgina þá finnur þú góðan drykk hér fyrir neðan til að draga aðeins úr því.
Morgunverður
Hráefni:
- 1/2 bolli af möndlumjólk
- 1/3 bolli af grískum jógúrt
- 1 bolli af baby spínat
- 1 bolli af frosnum banana í bitum
- 1/2 bolli af frosnum ananas í bitum
- 1 msk chia fræ
- 1-2 tsk af hunangi eða hlynsýrópi
Undirbúningur:
Settu möndlumjólkina og jógúrt í blandara, bættu svo spínat, banana, ananas, chia og sætuefninu (ef þú ætlar að nota það), blandið vel eða þar til drykkurinn er orðinn mjúkur.
Kvöldverður
Innihald:
- ghee eða ólífuolía til steikingar
- 1 sellerírót
- 3 gulrætur
- 100 g þurrkaðir tómatar
- 2hvítlauksrif
- 2 msk grænmetiskraftur
- 1 msk oregano
- 1 msk turmeric
- 500-750 ml vatn
- 1 dóskókosmjólk
- nokkrir dropar fiskisósa
- salt og pipar.
- Skerðu sellerírótina og gulræturnar smátt og láttu mýkjast í olíunni.
- Bættu svo tómötunum, hvítlauknum og kryddinu við og passaðu að láta tómatana mýkjast.
- Settu vatnið út í og láttu malla í ca. 10 mín.
- Taktu þá töfrasprota og maukaðu súpuna. Áferðin á að vera frekar gróf.
- Settu svo kókosmjólkina út í og kryddaðu til.
Morgunverður
Innihald:
- 1 bolli kínóaflögur (það er líka alveg hægt að nota haframjöl eða Tröllahafra í staðinn en þá er grauturinn ekki laus við glúten)
- 1 bolli möndlumjólk
- 1 bolli sjóðandi heitt vatn
- ¼ tsk sjávarsalt
- ½ - 1 banani – skorinn í sneiðar
- 4-8 döðlur – smátt saxaðar
- ¼ bolli pekanhnetur – smátt saxaðar
- 1 tsk kókospálmasykur – ef vill
Aðferð:
Kínaflögur, möndlumjólk, vatni og salti blandað saman í pott. Sett á meðahlita og þegar suðan kemur upp er potturinn tekinn af hellunni, lokið sett á og látinn standa í 5- 10 mín. (Grauturinn þykknar við þetta).
Grautinum skammtað í skálar og banana, döðlum og pekanhnetum dreift yfir.
Smá kókospálmasykri dreift yfir ef vill.
Kvöldverður
- 3 msk. soðið Kínóa
- 2 egg
- Avacado
- Tómatar
- Camenbert
- chilli Salt og pipar
Aðferð
Átti til soðið Kínóa svo langaði að prufa með eggjum. Þeytti upp eggin með Kínóa. Setti á pönnu og raðaði tómat og Avacado yfir. Í lokin smá Camenbert. Salt og pipar .....líka ágætt að setja í blönduna áður en sett á pönnuna.
Líka örugglega gott að nota meira af kryddiþ Síðan setti ég þetta í lokin inn í ofn í nokkrar mínútur til að fá toppinn vel eldaðan.
Morgunverður
Hráefni:
- 2 sítrónur
- Hálf gúrka
- 12 myntu lauf
Taktu könnu sem tekur c.a 1. líter og fylltu af vatni og skerðu niður sítrónurnar, gúrkuna og rífðu myntulaufin aðeins.
Láttu könnuna inn í ísskáp og þetta þarf að standa yfir nótt.
Það er svo afar gott að byrja daginn á að drekka 2 glös af þessu, talað er um viku en ég drekk þetta sjálf iðulega þegar mig langar í. Vonandi hjálpar þetta.
Kvöldverður
- 500gr. Hreint ungnautahakk
- 2 gular paprikur
- 1 rauðlauður
- 4 stórar gulrætur
- 3 rif hvítlaukur marin
- lúka af vel saxaðri Steinselju
- 1 stöngull Sellery
- smá niðurskorin chilli
- 2 dl. frosnar grænar baunir
- 1/2 kúrbítur
- 4 litlar soðnar kartöflur
- 2 tsk. Fish sósa
- 1 msk. sweet chilli sósa ( kaupi í Lifandi markaði holla)
- 1 msk. sweet soya sósa
- 2 tsk. grænmetiskraftur frá sollu
- 4 dl. vatn
- chilli salt eða saltverkið
- nýmulin pipar
- creola krydd
Aðferð.
Skera allt grænmetið smátt og steikja. Krydda með salt og pipar. Setja til hliðar. Steikja kjötið og krydda með creola, salt og pipar. Bæta niðurskornum kartöflum við. Síðan bæta öllum sósunum, kraftinum og vatninu við og sjóða allt upp og bæta grænmetinu við og leifa malla saman í smá stund.
Morgunverður
- 1/2 bolli frosin eða fersk bláber
- 1/2 bolli vanillu eða bláberjaskyr
- 2 matskeiðar vanilluís
- 1 matskeið grófar kókosflögur
- Smávegis léttmjólk D vítamínbætt að sjálfsögðu
- 3-4 Ísmolar
Öllu skellt í blenderinn og voila!
Kvöldverður
Hráefni:
- 400 g spagettí
- 1 ½ kjúklingateningur
- 2 dl vatn
- 100 g rjómaostur
- 2 dl matreiðslurjómi
- pipar
- 2 msk steinselja, þurrkuð
- 2 tsk oreganó, þurrkað
- 150 g beikon, smátt skorið
- 120 g sveppir, saxaðir
- 4 hvítlauksrif, söxuð
- 100 g valhnetur, skornar í tvennt
- 300 g rauð vínber, skorin í tvennt
- 180 g döðlur, steinlausar, saxaðar
Leiðbeiningar:
- Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu.
- Hitið vatnið í potti og setjið kjúklingateninga út í. Bætið rjómaosti og rjóma saman við og hitið að suðu. Kryddið með pipar steinselju og oregano. Takið til hliðar.
- Steikið beikonið á þurri pönnu. Bætið því næst við smá olíu og látið sveppi og hvítlauk saman við.
- Hellið rjómaostasósunni út á pönnunna ásamt valhnetunum og látið malla í um 5 mínútur.
- Bætið vínberjum og döðlum saman við sósuna og sósunni síðan saman við pastað.
Piprið ríflega, berið fram og njótið vel!
Morgunverður
- 100 gr grísk jógúrt
- 40 gr frosin hindber (1 dl)
- 2 msk kókosflögur frá himnesk hollusta (8 gr)
- 1 msk chia fræ
- lime safi, frá ca. 1/2 lime
- smá vanillukorn, ég nota frá rapunzel
- vatn eftir þörfum ca. 1 dl
Allt sett í blandarann og blanda vel.
Kvöldverður
Seint verður þessi Þorskur toppaður!
Beikon vafin með aspas,vorlauk og camenbert smurosti.
Kryddið var creola kyddið frá Pottagöldum og basiliku salt
Aðferð.
Hafa flökin flöt og skera aspas og vorlauk í góðar ræmur.
Leggja aspasinn og laukinn yfir fiskinn og eina tsk. af camenbert osti.
Krydda fiskinn og rúlla upp með beikoni. Eldað í ofni. Ég var með ekkert yfir fatinu. Eldaði á 200gráðum í miðjum ofni.
Síðan rétt í lokin skelti ég þessu á grill stllingu til að beikonið fengi að verða smá krispí.
Meðlætið var steikt grænmeti og hýðisgrjón með ristuðum möndlum.
Grænmetið aðferð
- Rauð paprika
- Gulrætur
- Kúrbítur
Skera fínt og steikta á góðri pönnu sem ekki þarf að drekkja í olíu. Bara nokkra dropa alveg nóg. Möndlurnar þurr steiki ég á pönnu. Saxa þær niður fyrst.
Morgunverður
- 1 dl frosin bláber
- 4-5 frosin jarðarber
- 1/2 banani
- 1/2 dl hreint eplamauk
- 1 msk hörfræ
- 1/2 - 1 dós Arna vanilluskyr
- 1 - 1 1/2 dl nettmjólk
Setjið bláber, jarðarber, banana, eplamauk, hörfræ og vanilluskyr í blandara ásamt 1 dl af nettmjólk. Bætið 1/2 dl við til að þynna ef þarf.
Kvöldverður
Appelsínu- og saffran paste:
- 1 appelsína
- 50 g hunang (ég notaði akasíu)
- 1/2 tsk saffranþræðir
- 300 ml. vatn
Salat:
- 1 kg kjúklingabringur
- 4 msk ólífuolía
- 2 lítil fennel
- 15 g kóríanderlauf
- 15 g basillauf rifin
- 15 g myntulauf rifin
- 2 msk sítrónusafi
- 1 rautt chili
- 1 hvítlauksgeiri
- alt og pipar
Svona gerið þið appelsínupaste-ið:
- Byrjið á að hita ofninn í 180 gr.
- Skerið toppinn og botninn af appelsínunni, skerið í 12 báta og takið kjarnann burt.
- Setjið bátana með hýðinu í pott ásamt saffranþráðunum, hunanginu og vatni þannig að rétt fljóti yfir appelsínurnar.
- Látið suðuna koma upp og sjóðið við vægan hita í klukkustund.
- Útkoman á að vera mjúkar appelsínur og ca. 3 msk af þykku sýrópi en það gerðist ekki hjá mér. Appelsínurnar urðu mjúkar en ég fékk ekki þykkt sýróp svo ég notaði ekki allan vökvann þegar ég setti appelsínurnar í matvinnsluvélina til að mauka þetta saman. En úr matvinnsluvélinni á að koma þykkt mauk en samt þannig að það renni.
Salatið:
- Skolið kjúklingabringurnar, þerrið, setjið í ílát og veltið þeim upp úr helmingnum af ólífuolíunni og nægu af himalayan salti og pipar.
- Setjið síðan á heita pönnu, helst grillpönnu og brúnið í 2 mínútur á hvorri hlið.
- Því næst í eldfast mót og inn í 180 gr. heitan ofninn og eldið í 15-20 mínútur eða þar til tilbúið.
- Útbúið salatið á meðan með því að skera fennelið í þunnar sneiðar, rífa basiliku og myntu niður, bæta við kóríander og skera eitt rautt chili í þunnar sneiðar og setjið á það fat sem þið viljið bera fram á.
- Ég setti svo sítrónusafann, restina af ólífuolíunni og kraminn hvítlauksgeirann í litla skál og hrærði saman, setti yfir salatið og blandaði vel.
- Þegar kjúklingurinn hefur kólnað lítillega rífið hann þá í strimla með höndunum og setjið í skál. Hellið helmingnum af appelsínu- og saffran maukinu yfir og veltið kjúklingnum upp úr því. Hinn helminginn getið þið geymt í kæli og notað í alls konar sem ykkur dettur í hug t.d. með feitum fisk.
Morgunverður
- 1 vel þroskaður banani, ekki verra ef hann er frosinn
- 1 þroskuð pera
- Góða lúka af spínati, ca. 30 gr
- 3-4 stilkar af grænkáli, ca. 30 gr
- 2 dl möndlumjók (200 ml)
Kóríander eftir smekk, ég set alveg slatta enda gott og frískandi sítrus bragð af kryddjurtinni. Allt sett í blandarann og blandað þar til silkimjúkt og fallegt.
Kvöldverður
- 500 gr nautahakk
- 70 gr rifinn parmesan
- 2 msk fersk basillika smátt söxuð
- 5 sólþurrkaðir tómatar smátt saxaðir
- 1 bréf ítölsk salami smátt söxuð
- 3 hvítlauksrif pressuð
- 2 msk chillitómatsósa frá Heinz
- 1 tsk kjúklingakraftur
- 1 dl brauðrasp
- 1 egg
- salt og pipar eftir smekk
- 1 kúla ferskur mozzarella ostur
- tómatar
- salat
- hamborgarabrauð eða ciabatta brauð
- Basil majónessósa(getið gert ykkar eigin sem ég er með uppskrift af hér fyrir neðan eða keypt tilbúið frá Nicolas Vahé)
Takið parmesanostinn, basillikuna, sólþurrkuðu tómatana, salami og hvítlaukinn og blandið saman í skál. Blandið hakkinu síðan saman við ásamt egginu, tómatsósunni, kraftinum og brauðraspinu. Ég blanda þessu öllu saman með höndunum en ef þið viljið hafa þetta mjög fínt þá er gott að setja þetta allt saman í matvinnsluvél. Kryddið borgarana eftir smekk og grillið á miklum hita á útigrillinu í 5-7 mínútur á hvorri hlið.
Ég nota ciabatta brauð og set smá hvítlauksolíu á þau og grilla í nokkrar mínútur.
Síðan er bara að raða á borgarann eftir sínu eigin höfði, ég setti salat neðst svo tómata og mozzarella sneiðar. Síðan setti ég smá af piparrótarsósu á hamborgarann og smurði hann með basil majónesinu.
Basil majónes
- 4 msk majónes
- 2 tsk ólífumauk
- 3 msk fersk basillika smátt söxuð
- salt og pipar
- aromat
Blandið öllu saman í skál og látið standa í ísskápnum í lágmark nokkra klukkutíma, þá verður það miklu betra. Það sama má segja um borgarana en það er best að gera þá deginum áður eða allavega um morguninn áður en á að elda þá.
Tengt efni: