Kvöldmaturinn .
Þorskhnakkar í sveppasósu.
Með sætum kartöflum.
Voðalega auðvelt að malla þennan rétt.
Uppskrift.
Þorskhnakkar (eða annar góður fiskur)
Grænar baunir ( belgbaunir)
Sveppir
Graslaukur
Gulrætur
Paprika
2 rif Hvítlaukur
1 askja létt sveppa ostur
Saltverk Reykjaness
Pipar
Tandori krydd frá Pottagöldrum
Cayenepipar
Grænmetistengingur
2 dl. Vatn
2 dl. nýmjólk
2 dl. vatn
Steikja grænmetið ásamt hvítlauknum ( merja hvítlaukinn vel ) á pönnu.
Hell vatninu yfir og grænmetisteningnum.
Hræra vel upp og bæta ostinum við.
Krydda til.
Hræra allt vel saman og í lokin bæta við mjólkinni.
Fiskinn í eldfast mót og allt gumsið yfir.
Inn í ofn og eldað eftir smekk.
Ég vil fisk alls ekki mikið eldaðan.
Í lítið eldfast mót skar ég niður sæta kartöflu og það er mjög gott með svona fiskrétt.
Eða Blómkálsgrjón :)