Ég á afmæli í dag!
Í tilefni þess deili ég með þér uppáhaldi mínu þessa dagana og jafnframt því sem ég mun fá mér á jólunum, himnesk blómkálssteik með kókosrjómasósu og brakandi ferskum granateplum.
Steikin er öðruvísi en þú sérð á mörgum heimilum og vá hvað hún er góð!
Eftir ferðalög til Ísrael og Grikklands þarsíðasta sumar varð ég heltekin af kryddum Miðjarðarhafsins og matarhefðum Líbana. Jólin mín í ár verða því innblásin þaðan.
Ég verð nú að segja að í ferðalaginu varð ég ekkert síður heltekin af indverskri matargerð og kom ég heim með tösku fulla af indverskum klæðnaði, kryddum og borðskálum sem má sjá hér á Instagram síðu minni, en indversk jól bíða víst betri tíma
Ég held þú verðir hrifin/nn af steikinni, enda er hún:
Fullkomnari hátíðarsteik gerist það ekki að mínu mati.
Blómkálssteikin eldast eins og hefðbundar steikur, hún er krydduð og sett í eldfast mót í c.a. klst og borin fram með sósu. Afar einfalt og þægilegt.
Ef þú eldar hana í heilu lagi eins og ég geri mæli ég með að velja litla og krúttlega blómkálshausa eða skera blómkálið í tvennt eða þrennt og krydda. Þannig grípur blómkálið kryddin enn betur í sig.
Uppskriftin er innblásin af blómkáli sem má finna á einum uppáhalds veitingstað mínum hérlendis, Sumac. Þar er blómkálið snilldarlega borið fram og mæli ég eindregið með veitingastaðnum fyrir þá sem hafa ekki prófað.
Bakað blómkál
1 blómkálshaus
1 msk ólífuolía eða 1 msk vegan smjör brætt
1 tsk sítrónusafi
1 tsk hlynsróp
Kryddblanda
1 tsk salt
½ tsk malað kúmen
½ tsk kóríander
kardimommuduft á hnífsoddi
múskat á hnífsoddi
Sósa
3/4 bolli kókosmjólk úr dós (eða notið Nush möndluost eða Nush kasjúhnetujógúrt án bragða sem fæst t.d í Nettó fyrir örlítið þykkari sósu)
1 msk hvítt tahini
örlítið af sítrónubörk
örlítill sítrónusafi
salt og pipar eftir smekk
Til skreytingar: Granatepli, möndluflögur, sítrónubörkur, fersk steinselja.
1. Hitið ofninn við 190°C.
2. Fjarlægið lauf blómkálsins og skerið stilkinn í burtu þannig að blómkálið geti staðið upprétt. Fyrir enn sterkara bragð má skera blómkálið í 2-4 hluta (fer eftir stærð blómkáls) og tvöfalda magn kryddblöndunar.
3. Setjið blómkálið í eldfast mót, hrærið kryddblönduna saman í skál og penslið yfir. Hyljið mótið með loki eða álpappír og eldið í 40-50 mín ef þið eldið heilt blómkál eða 20-30 mín ef þið skerið blómkálið. Eldið aðeins þar til miðja blómkálsins er orðin mjúk og hægt er að stinga hníf í gegn. Þá er álpappírinn tekinn af og blómkálið eldað í 5-10 mín til viðbótar eða þar til gyllt og örlítið stökkt að utan.
4. Útbúið á meðan sósuna með því að blanda öllu saman í skál eða blandara. Geymið í kæli.
5. Berið blómkálið fram með sósunni, granateplum, ristuðum möndluflögum, sítrónubörk og ferskri steinselju. Frábær jólasteik eða sem meðlæti.
Ég vona að þú prófir, láttu endilega vita hvernig smakkast og taggaðu mig á @julias.food á instagram, mér finnst mjög gaman að sjá ykkar myndir! Ekki gleyma að deila á Facebook!
Ég er afar þakklát fyrir að fá að skrifa til þín og þakka fyrir samfylgdina á liðnu ári.
Óskum við þér gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári!
Heilsa og hamingja