Birna Varðar er 21.árs og hörkuduglegur orkubolti sem heldur úti birnumolar.is þar sem hún deilir með lesendum uppskriftum og skemmtilegu bloggi. Ég hvet ykkur sem hafa áhuga á hlaupi og undir búningi fyrir maraþon að kíkja á síðasta bloggið hennar, þar sem hún fer yfir undirbúning fyrir Kaupmannamaraþonið sem var á dögunum. Einnig er vert að nefna hún náði nýju íslandsmeti í aldrinum 20-22 ára í Kóngsins Köben.
Birna Varðar er snillingur í eldhúsinu
Birna Varðar er 21.árs og hörkuduglegur orkubolti sem heldur úti birnumolar.com þar sem hún deilir með lesendum uppskriftum og skemmtilegu bloggi.
Ég hvet ykkur sem hafa áhuga á hlaupi og undir búningi fyrir maraþon að kíkja á síðasta bloggið hennar, þar sem hún fer yfir undirbúning fyrir Kaupmannamaraþonið. Einnig er vert að nefna hún náði nýju íslandsmeti í aldrinum 20-22 ára í Kóngsins Köben.
Birna gaf einnig út bókina „Moli minn“ sem lýsir baráttu höfundar við átröskun og brotna sjálfsmynd. Bókin veitir lesendum innsýn í hugarheim afrekskonunnar. Hömlulaus fullkomnunarárátta verður henni að falli. Skyndilega snýst veröldin á hvolf, innan hlaupabrautar sem utan. Í bataferlinu reynir á viljastyrk, keppnisskap og traust bakland.
Birna er líka snillingur í eldhúsinu og galdrar fram ljúfmeti sem er hollt og gott fyrir alla fjölskylduna. Í samstarfi við Heilsutorg.is ætlum við að birta á næstunni skemmtilega uppskriftir frá Birnu.
Undir - og yfirlag
- 100 g valhnetur
- 150 g möndlur
- 1/8 tsk salt
- 190 g ferskar döðlur
- 50 g kakóduft
Millilag
- 90 g möndlur
- 45 g Valhnetur
- 125 g rúsínur
- ½ bolli haframjöl
- 3-4 msk hnetusmjör
Aðferð
- Setjið valhnetur, möndlur, salt, ferskar döðlur (steinhreinsaðar) og kakóduft í matvinnsluvél og blandið mjög vel saman – þið viljið helst fá ákveðna leiráferð á soppuna
- Setjið bökunarpappír í botninn á tveimur hringlaga bökunarformum
- Skiptið soppunni í tvennt og þrýstið vel út til hliðanna
- Geymið í frysti meðan þið gerið millilagið
- Setjið möndlur og valhnetur fyrst í matvinnsluvélina og blandið – bætið svo við rúsínum og haframjöli og blandið enn betur
- Hrærið hnetusmjörinu út í og blandið öllu mjög vel saman.
- Takið yfir- og undirlagið út úr frystinum og leggið undirlagið á disk
- Smyrjið millilaginu jafnt á og leggið svo yfirlagið yfir
- Skreytið að vild og skellið þessu í frysti
- Takið út og njótið hvenær sem hentar
Tengt efni: