Byrjað verður að taka á móti skráningum 7.apríl n.k og mun kosta 38.000 kr inn á fyrirlesturinn. Innifalið í þessu eru veglegar veitingar.
Þarna mun Lance Armstrong segja sögu sína í Tour de France og hann mun einnig ræða um stera notkun og önnur ólögleg efni sem tengjast íþróttum. Einnig verður komið inn á hans baráttu við krabbamein og fleira.
Þetta er eitthvað sem áhugafólk um hjólreiðar ætti alls ekki að láta fram hjá sér fara sem og annað íþróttafólk.
Nánari auglýsing varðandi skráningar mun koma seinna í vikunni.
Með kveðju, Heilsutorg.is