Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur, í samvinnu við Sjóvá, sett á stofn Öryggisakademíuna.Hlutverk hennar er að koma öryggis- og forvarnamálum í tengslum við flugelda á framfæri við alla aldurshópa.Öryggisakademían er staðsett við flugeldaverksmiðju björgunarsveitanna og í tilraunastofu hennar vinna færustu vísindamenn að alls kyns tilraunum um forvarnir. Síðastliðnar vikur hafa þeir unnið sleitulaust við prófanir á flugeldum til að auka öryggi við notkun þeirra. Nú hafa fyrstu niðurstöður tilraunanna litið dagsins ljós og eru í formi stuttmynda úr Öryggisakademíunni. Þar koma fram 11 mikilvæg atriði sem hafa ber í huga þegar flugeldum er skotið upp. Ekkert fikt Fjarlægð og undirstaða Ekki halda á Notum alltaf flugeldagleraugu Ekki fikta Tilraun 01. Almenn umgengni. Verklegur framkvæmdaraðili: 12b. Óyggjandi vísindalegar niðurstöður liggja fyrir. Aldrei fikta í flugeldum, þar sem oft verða slæm slys af þessum völdum. |
||
Frekari upplýsingar um öryggisatriði |