Heilablóðfall er afleiðing skyndilegrar truflunar á blóðflæði til heilans af völdum blóðtappa eða þess að æð brestur. Bandarísku heilablóðfallssamtökin National STROKE association segja að allir geti lært að bera kennsl á heilablæðingu með því að beita þremur einföldum ráðum:
1. Biðja manneskjuna að BROSA.
Fylgir hluti andlitsins ekki með í brosinu?
2. Biðja manneskjuna að LYFTA BÁÐUM HANDLEGGJUM.
Leitar annar handleggurinn niður á við?
3. Biðja manneskjuna að SEGJA EINA EINFALDA SETNINGU (sem er í samhengi, t.d. ...Sólin skín í dag).
Drafar einstaklingurinn eða er óskýr?
Ef viðkomandi á í erfiðleikum með eitthvert þessara atriða eins og áður er lýst - hringið þá strax í neyðarnúmerið 112, lýsið einkennunum og fylgist vel með einstaklingnum.
Haft er eftir sérfræðingum að ef allir sem sjá þennan póst og leggja á minnið getur viðkomandi reiknað með því að mannslífi eða mannslífum verði bjargað.
LÁTTU EKKI ÞITT EFTIR LIGGJA - DEILDU ÞESSU MEÐ EINS MÖRGUM OG ÞÚ GETUR
Hér er hægt að finna frekari upplýsingar um einkenni heilablóðfalls
Heimild: hjartalif.is
Sendu okkur mynd á Instagram #heilsutorg