Fara í efni

Að bera kennsl á heilablóðfall

Heilablóðfall er afleiðing skyndilegrar truflunar á blóðflæði til heilans af völdum blóðtappa eða þess að æð brestur.
Verum vakandi
Verum vakandi

Heilablóðfall er afleiðing skyndilegrar truflunar á blóðflæði til heilans af völdum blóðtappa eða þess að æð brestur. Bandarísku heilablóðfallssamtökin National STROKE association segja að allir geti lært að bera kennsl á heilablæðingu með því að beita þremur einföldum ráðum:

1.      Biðja manneskjuna að BROSA.

Fylgir hluti andlitsins ekki með í brosinu? 

2.      Biðja manneskjuna að LYFTA BÁÐUM HANDLEGGJUM.

Leitar annar handleggurinn niður á við? 

3.      Biðja manneskjuna að SEGJA EINA EINFALDA SETNINGU (sem er í samhengi, t.d. ...Sólin skín í dag).

Drafar einstaklingurinn eða er óskýr? 

Ef viðkomandi á í erfiðleikum með eitthvert þessara atriða eins og áður er lýst - hringið þá strax í neyðarnúmerið 112, lýsið einkennunum og fylgist vel með einstaklingnum.

Haft er eftir sérfræðingum að ef allir sem sjá þennan póst og leggja á minnið getur viðkomandi reiknað með því að mannslífi eða mannslífum verði bjargað.

LÁTTU EKKI ÞITT EFTIR LIGGJA - DEILDU ÞESSU MEÐ EINS MÖRGUM OG ÞÚ GETUR

Hér er hægt að finna frekari upplýsingar um einkenni heilablóðfalls 

Heimild: hjartalif.is 

Sendu okkur mynd á Instagram #heilsutorg