Á þeim tíma sem tekur húðina að verða bleik (10-30 mín) getur líkaminn framleitt 10 til 25.000 einingar. Það er góð þumalfingursregla, ef skuggi þinn er lengri en þú, er UVB geisli sólarinnar ekki lengur til staðar. Til samanburðar er ráðlagður dagskammtur D3 (RDS) á bilinu 400-800 einingar. Mikilvægt er að fólk sýni ábyrga sólariðkun. D-vítamín finnst helst í feitu sjávarfangi, fiskiolíu, eggjum og lifur auk D-vítamínbættra vara. Ef við fyllum matarkörfu af hollum og næringarríkum matvörum eru engar líkur á að innihaldið uppfylli þörf líkamans.
Eldri kynslóðir búa að því að hafa fengið þá þekkingu og venjur sem þurfti til að skilja mikilvægi lýsisinntöku. Börnum var gefið lýsi í skólanum hér áður fyrr. Foreldrar okkar eiga slíkar minningar, sem bjuggu til þekkingu og venjur. Það er engin tilviljun að markaðsherferð lýsis í dag undirstrikar að lýsi sé leynivopn þjóðarinnar. Í raun er það D-vítamínið í lýsi sem er leynivopn þjóðarinnar. Í dag er ábyrgð foreldra að tryggja börnum sínum D-vítamíngjafa, foreldrar sem búa ekki að þeirri þekkingu sem fyrri kynslóðir höfðu. Það er sértakt áhyggjuefni að leik- og grunnskólar landsins búa við það kröpp kjör að það þyki sparnaður að draga saman innkaup af lýsi eða öðrum D-vítamíngjafa.
Rannsókn á D-vítamínbúskap Íslendinga fór síðast fram árið 2004, niðurstöður voru að helmingur þátttakenda mældust með D-vítamínforða undir æskilegu kjörgildi. Rannsóknir manneldisráðs hafa sýnt að fiskneysla hefur dregist saman um þriðjung og að inntaka lýsis sem D-vítamíngjafa er verulega ábótavant í aldurshópum 18-80 ára. Þrátt fyrir að ætla mætti að vandinn væri meiri á norðlægum slóðum þá hefur breyttur lífstíll fólks um allan heim tengt inniveru, aukinni mengun og notkun sólarvarna aukið D-vítamínskort um allan heim. Í samtölum við fólk heyri ég að fólk er ringlað yfir inntökumagni, formi og misvísandi skilaboð frá ólíkum aðilum. Vísindamenn og læknasamfélagið er sammála um að kjörgildi í blóði eigi að vera á bilinu 50-150 nmól/L. Embætti landlæknis gefur út leiðbeiningar um ráðlagða dagskammta (RDS) D-vítamíns á bilinu 400-800 einingar, sem eiga við um þorra heilbrigðs fólks. Ég hef verið hugsi yfir ýmsum vanda sem Íslendingar glíma við í heilbrigðismálum og velti stundum fyrir mér hvort fólk sé að glíma við ógreindan D-vítamínskort og einkenni leiði ekki strax til réttrar greiningar. Stundum sé gengið að því vísu að fólk hafi þá þekkingu sem til þarf til að byggja upp D-vítamínbúskap sinn. Ef börn eða fullorðnir mælast í D-vítamínskorti eiga ráðlagðir dagskammtar einfaldlega ekki við. Þess vegna er ég hugsi yfir því að heyra af fólki hefur verið neitað um blóðrannsókn á D-vítamínbúskap sínum og vísað frá með ráðleggingu um að taka D-vítamín án þess að gera því kleift að fá vitneskju um stöðu á kjörgildi og geti því gripið til viðeigandi ráðstafana til að byggja hann upp og viðhalda (m.v. efri mörk RDS) í skamman tíma á meðan að kjörgildi er náð. Þá er hætt við að fólk taki meira mark á fræðslu frá markaðsöflum sem hafa hagsmuni af sölu fæðubótarefna. Ég gef fjölskyldu minni D-vítamíndropa GMP merkta (gæðastimpill framleiðslu) auk fiskiolíu; Þorskalýsi, Krill olíu eða frá Dropa á Bolungarvík.
Beinvirkni sjúkdómar eru aðeins toppurinn á ísjakanum yfir afleiðingar D-vítamínskorts. Á síðustu árum hafa nýjar uppgötvanir leitt í ljós viðtaka með fjölbreytt hlutverk í vefjum og frumum líkamans sem eru undirstaða sterks ónæmiskerfis, beinheilsu og góðrar heilsu almennt. Þessar uppgötvanir eru óplægður akur vísindamanna og eiga eftir í framtíðinni að hjálpa okkur við að skilja enn betur mikilvægi D-vítamíns í líkamanum.
Þátttakendur í rannsókninni tengd MSc lokaverkefni í markaðsfræðum, voru 451 talsins, kennarar í grunn- og menntaskólum. Meginniðurstaða var að vitundarvakningar er þörf á mikilvægi inntöku D-vítamíngjafa auk fræðslu á tengdum áhrifavöldum. Flestir búa yfir þeirri þekkingu . . . LESA MEIRA