12 stutt og einföld skref til að bæta mataræðið
Lífsstílsbreytingar er eitthvað sem mörgum okkur reynist erfitt að standa við til lengri tíma og fyrir marga felst lausnin ekki í því að kollvarpa lífinu með breyttu mataræði. Kristján Már Gunnarsson sem helst er þekktur fyrir að hafa ritstýrt vefsíðunum AuthorityNutrition.com og betrinaering.is hefur tekið saman 12 atriði sem gætu komið að gagni fyrir þá sem vilja gera þetta hægt og rólega.
Það sem virkar fyrir einn, virkar ekki endilega fyrir annan.
Þegar um er að ræða lífsstílsbreytingar, þá eru sumir (eins og ég) sem kjósa að demba sér í hlutina og breyta öllu í einu.
En aðrir vilja hægari, varkárari nálgun … smáar, litlar breytingar, ein í einu.
Hvorug aðferðin er betri en hin, við erum einfaldlega mismunandi og nálgumst hlutina á ólíkan hátt.
Þessi grein er fyrir þá sem kjósa lengri og hægari aðferina.
Hún útskýrir hvernig hægt er að taka upp hollt, náttúrulegt mataræði í 12 einföldum og viðráðanlegum skrefum.
Þú getur tekið eitt skref á viku, tveggja vikna fresti eða eitt á mánuði … veldu bara hraða sem hentar þér. Að gefa þér tíma til að venjast einni breytingu áður en þú ferð í þá næstu er góð hugmynd.
Burtséð frá hversu hratt þú nálgast þetta, þá ættir þú að sjá árangur strax vegna þess að hvert skref skilar miklum árangri.
Þegar þú ert kominn á leiðarenda, ættir þú bæði að hafa misst umtalsverða þyngd og bætt heilsu þína, hvoru tveggja líkamlega og andlega.
Mundu … vani setur viljastyrk á sjálfstýringu. Breyting á lífsstíl og hegðun getur verið erfið í byrjun, en verður áreynslulaus þegar hún er orðin að vana.
Með því að ná tökum á einni lítilli venju í einu, leggurðu grunninn fyrir langtímaárangur.
Hér eru 12 stutt og einföld skref til að bæta mataræðið.
1. Fáðu þér meira prótein til að auka efnaskipti, minnka matarlyst og leggja grunninn að betri árangri á seinni stigum
Áður en við drögum úr þá bætum við í.
Þetta fyrsta skref mun breyta efnaskiptum þínum þannig að síðari breytingar verða léttari.
Fyrst af öllu þá eykur prótein efnaskiptahraða … það er hversu mörgum hitaeiningum þú brennir í hvíld.
Rannsóknir sýna að próteinríkt fæði eykur brennslu um allt að 80-100 hitaeiningar á dag, samanborið við próteinrýrt fæði (1, 2).
Í öðru lagi dregur prótein úr matarlyst, sem veldur því að þú borðar minna (3, 4).
Ein rannsókn sýndi fram á að ef 30% hitaeininga kom úr próteini þá olli það því að neysla dróst saman um 449 hitaeiningar á dag. Fólk misst 4,9 kg á 12 vikum, án þess að takmarka viljandi mat (5).
Að sjálfsögðu … þá hefur nægilegt prótein einnig marga aðra kosti í för með sér, þar á meðal aukinn vöðvamassa, sterkari bein, lægri blóðþrýsting o.s.frv. (6, 7, 8).
Góðar uppsprettur próteins eru kjöt, fuglakjöt, fiskur, egg og fituríkar mjólkurvörur (ef þú þolir þær). Sumir vilja baunir og belgjurtir, sem eru fínar ef þær eru vel matreiddar.
Ég mæli með að þú borðir um 1,5-2,5 gramm af próteini fyrir hvert kílógramm líkamsþyngdar.
Þú þarft ekki að vigta eða mæla þetta, en það gæti verið gott að fylgjast með magninu í upphafi til að tryggja að þú sért að fá nóg.
Að borða meira prótein er einfaldasta og ljúffengasta leiðin til að breyta efnaskiptunum á þann hátt að við léttumst, matarlystin minnkar og heilsan batnar. Þetta mun líka valda því að breytingarnar sem á eftir koma verða auðveldari.
Niðurstaða: Að bæta próteini við mataræðið mun auka brennslu og draga úr matarlyst. Meira prótein mun líka valda því að síðari breytingar verða léttari.
2. Fáðu þér hollan morgunmat, best er ef hann inniheldur egg
Annað skrefið felst í að breyta einni af daglegu máltíðunum … morgunmatnum.
Flestir fá sér morgunkorn eða eitthvað svipað í morgunmat, en þetta er eiginlega það versta sem þú getur fengið þér í upphafi dags.
Morgunkorn er yfirleitt hlaðið unnum kolvetnum og sykri (líka “holla” morgunkornið).
Að borða þetta rusl í morgunmat hækkar blóðsykurinn verulega, síðan hrynur hann nokkrum tímum síðar … og skilur eftir sig mikla þörf fyrir aðra hákolvetnamáltíð (9).
Fáðu þér þess í stað egg í morgunmat.
Egg eru meira og minna hinn fullkomni morgunmatur … þau eru próteinrík, innihalda holla fitu og tonn af næringarefnum (10).
Það eru til nokkrar rannsóknir sem sýna að ef þú skiptir út kornríkum morgunmat (beyglum) fyrir egg, þá hjálpar það þér við fitutap (11, 12).
Egg eru fín með grænmeti eða ávöxtum … en þú getur líka haft gott beikon með þeim ef þú vilt.
Ef þú getur ekki borðað egg einhverra hluta vegna, þá mun allur prótein- og næringarríkur matur duga.
Það er ekki til NEIN gild afsökun fyrir því að borða ekki hollan morgunmat. Þegar þú hefur gert það að venju, þá tekur ekki nema í mesta lagi 5-10 mínútur að undirbúa morgunmat sem byggir á eggjum. Stilltu vekjaraklukkuna þína bara aðeins fyrr.
Að því sögðu, þá er engin sérstök þörf á að borða morgunmat ef þig langar ekki í hann, passaðu bara að fyrsta máltíð dagsins sé holl.
Niðurstaða: Að borða hollan, næringarríkan morgunmat sem inniheldur prótein og holla fitu er besti grunnurinn fyrir daginn.
3. Skiptu slæmum fitum og olíum út fyrir góðar fitur og olíur
Sú einfalda leið að skipta óhollum fitum og olíum út fyrir hollari getur haft mikil áhrif á heilsu þína til framtíðar.
Flestir borða mikið af mjög óhollum fitum … þar á meðal transfitum og unnum jurtaolíum.
Þó transfituneysla hafi minnkað á undanförnum árum og áratugum, þá er hún samt allt of mikil.
Til að forðast transfitur skaltu passa þig á að lesa innihaldslýsinguna áður en þú borðar matinn. Ef þar stendur “hert” eða “hydrogenated” einhvers staðar á merkimiðanum, skaltu ekki borða matinn.
Unnar jurtaolíur eru líka slæmar. Þær hafa aðra samsetningu en önnur náttúruleg fita, þær eru óeðlilega háar í Omega-6 fitusýrum. Hér á meðal eru kornolía, sojaolía, sólblómaolía og fleiri.
Án þess að fara út í smáatriði (þú getur lesið um þau hér), þá getur neysla jurtaolíu leitt til aukinna bólgna og oxunarskemmda í líkamanum, auk mögulega aukinnar hættu á hjartasjúkdómum og krabbameini (13, 14, 15, 16).
Í stað þessara óhollu olía, skaltu velja fitu sem er að mestu mettuð og/eða einómettuð. Smjör, kókosolía, ólífuolía. Hnetur eru líka góð uppspretta fitu.
Niðurstaða: Sú einfalda aðgerð að skipta út transfitum og jurtaolíum sem innihalda mikið af Omega-6 fyrir hollar, hefðbundnar fitur ætti að leiða til betri heilsu og valda því að líkami þinn starfar betur.
4. Fjarlægðu sykraða drykki og ávaxtasafa úr mataræðinu
Sykur er slæmur … en sykur í fljótandi formi er enn verri.
Rannsóknir sýna að heilinn “skráir” fljótandi sykurhitaeiningar ekki á sama hátt og hitaeiningar úr öðrum matvælum (17, 18).
Svo þú gætir fengið nokkur hundruð hitaeiningar úr gosi á einum degi (ekki óalgengt) en heilinn tekur ekki tillit til þeirra þegar hann reynir að stjórna orkujafnvægi þínu.
Ef þú værir að bæta mat við mataræðið, myndir þú sjálfkrafa borða minna af einhverju öðru í staðinn. Með öðrum orðum, heilinn myndi “bæta” fyrir viðbótina af hitaeiningum.
Þetti gerist ekki með fljótandi sykurhitaeiningar. Heilinn “bætir” ekki fyrir þær, svo þú endar á að innbyrða fleiri hitaeiningar en þú þarft.
Ein rannsókn sýnir að neysla eins skammts af sykruðum drykkjum á dag tengist 60% aukinni hættu á offitu hjá börnum (19).
Margar aðrar rannsóknir styðja þetta … sykraðir drykkir eru mögulega mest fitandi þáttur nútíma mataræðis (20).
Hafðu í huga að ávaxtasafi er jafn slæmur. Hann inniheldur sama magn sykurs og sætur gosdrykkur (21).
Niðurstaða: Sykur er eitt versta innihaldsefnið í nútíma mataræði, en í fljótandi formi er hann jafnvel enn verri.
5. Farðu að æfa … finndu eitthvað sem þú nýtur og haltu þig við það
Hreyfing er eitt það mikilvægasta sem þú getur gert bæði fyrir líkamlega og andlega heilsu, sem og varnir gegn sjúkdómum.
Hreyfing ein og sér er ólíkleg til að leiða til verulegs þyngdartaps (22).
Þó … hún getur hjálpað til við að bæta líkamssamsetningu þína. Þú ert kannski ekki að léttast, en þú gætir verið að tapa nokkurri fitu og ná þér í smá vöðva í staðinn (23).
Hreyfing leiðir til svo margra kosta að það er utan viðfangsefnis þessarar greinar að lista þá alla upp … við skulum bara segja að þjálfun sé mjög verndandi gegn nánast öllum krónískum, vestrænum sjúkdómum (24).
Hún er líka ótrúlega gagnleg fyrir skap, vellíðan og þunglyndi, sem er mjög algengt vandamál í dag (25, 26, 27).
Þegar kemur að þjálfun, þá skiptir ekki mestu máli hvað þú gerir nákvæmlega. Það sem er mikilvægt er að finna eitthvað sem þú hefur gaman af að gera og getur haldið þig við til lengri tíma.
Þó blanda þol- og styrktarþjálfunar geti verið best getur eitthvað eins einfalt og að fara í göngutúra haft ótrúlega öflug áhrif á heilsu (28).
Ef þú hefur þegar tekið skref 1-4, þá ættu hormón þín að vera farin að vinna betur og orka þín aukist, svo að byrja einhverja þjálfun kann að vera léttara en þú heldur.
Þú skalt vinna þig upp í einhvers konar hreyfingu a.m.k. þrisvar í viku.
Niðurstaða: Hreyfing er jafn mikilvæg og næring þegar kemur að góðri heilsu. Hún getur bætt bæði líkamlega og andlega heilsu og er mjög verndandi gegn flestum nútíma, langvinnum sjúkdómum.
6. Skiptu út sykri, unnum kolvetnum og hveiti fyrir annan hollan mat
Nú er kominn tími til að hreinsa öll “slæmu” kolvetnin út.
Sykur og unnin kolvetni eru nokkrir óhollustu þættir nútíma mataræðis.
Þau eru næringarsnauð og trefjalítil og stuðla að ofáti, en það felur síðan í sér ofgnótt efnaskiptavandamála og sjúkdóma (29, 30).
Hveiti er kapítuli út af fyrir sig. Nútíma hveiti (ræktun hófst um 1960) er næringarefnasnautt í samanburði við eldri afbrigði hveitis og er miklu verra fyrir þá sem hafa glútenóþol eða glútennæmi, en eldri gerðir (31, 32, 33).
Í stað “slæmu” kolvetnanna, veldu frekar hollari . . . LESA MEIRA