20 ráð til að auka hreyfingu í daglegu lífi
Vorið er tilvalinn tími til að koma meiri hreyfingu fyrir í daglegu lífi, þetta þarf ekki að vera flókið og hægt er að gera það með tiltölulega einföldum aðferðum.
Vorið er tilvalinn tími til að koma meiri hreyfingu fyrir í daglegu lífi, þetta þarf ekki að vera flókið og hægt er að gera það með tiltölulega einföldum aðferðum.
Hér má finna 20 hugmyndir frá Harvard Health til þess að koma meiri hreyfingu inn í líf þitt, og til að fá meiri hreyfingu út úr hlutum sem við gerum daglega. Nú er um að gera að reyna að beita öllum ráðum til að auka hreyfingu okkar þar sem hreyfing getur verið góð í baráttunni gegn hjartasjúkdómum. Allt hljómar þetta einfalt, þá er bara að koma þessu í verk.
- Veldu hreyfingu sem þér finnst skemmtileg. Það er ýmislegt sem flokkast sem góð hreyfing: dans, ganga, jóga, garðyrkja, hjóla, spila körfubolta o.s.frv. Til að auðvelda þér það að byrja að hreyfa þig, þá skaltu velja eitthvað sem þér finnst fyrst og fremst skemmtileg til að koma þér af stað. Veldu eitthvað sem þú sérð fyrir þér að henti þér, ertu til í að smella þér í hentug föt og hjóla í vinnuna? Hentar þér að dilla þér við skemmtilega tónlist í tíma með öðrum? Eða sérðu þig fyrir þér á hlaupabrettinu?
- Pússlaðu hreyfingunni saman. Þú þarft ekki endilega að eyða mjög löngum tíma í einu í hreyfingu. Tíu mínútur á morgnanna, í hádeginu og á kvöldin getur skilað sama ávinningi og 30 mínútur í einu.
- Æfðu með vini/vinkonu. Það getur verið hvetjandi, komið þér útum dyrnar og haldið þér við efnið ef þú ert með einhvern sem æfir með þér.
- Hafðu hreyfinguna röska. Þegar þú ert að labba, gerðu það rösklega frekar en að labba rólega, þetta getur verið betra þegar kemur að þyngdarstjórnun. En hvað er nógu rösklegt? Labbaðu eins og þú sért á leið í hádegismat með vini og þú ert frekar sein/n. Þú getur einnig talið hvað þú tekur mörg skref á mínútu: 120-135 skref á mínútu samsvarar því að labba á 4.8 til 6.4 km á klst, sem er gott markmið fyrir flesta. Ef þú ert ekki alveg svona rösk/ur, þá er sniðugt að auka hraðann á köflum og hægja svo aftur, smátt og smátt nærðu þá að vinna þig upp í meiri gönguhraða.
- Taktu smá hreyfingu í hádegishléinu. Ekki eyða öllu hádegishléinu sitjandi. Ef tími gefst, kíktu í líkamsrækt eða í 20 mínútna göngutúr jafnvel með vinnufélaga. Þú getur svo fengið þér í gogginn þegar þessu er lokið.
- Prófaðu að nota skrefamæli. Skrefamælar eru ódýrir og einfaldir í notkun, þeir hjálpa til við að halda utan um hversu virk/ur þú ert. Einnig eru til ýmis konar „öpp“/forrit fyrir síma sem telja skref. Reyndu að vinna þig upp í um 7000 skref á dag, eða meira.
- Taktu stigann. Notaðu stigann í stað lyftunnar eða rúllustigans alltaf þegar færi gefst.
- Slökktu á sjónvarpinu, tölvunni og snjallsímanum. Það að minnka tímann sem eytt er fyrir framan skjáinn er góð leið til að minnka þann tíma sem þú eyðir „sitjandi“. Skiptu þessum tíma út fyrir hreyfingu, kíktu í ræktina, eða taktu jafnvel smá tiltekt um húsið eða göngutúr.
- Labbaðu eina auka stoppistöð. Ef þú tekur strætó, þá er til dæmis hægt að fara út einni stoppistöð fyrr en vanalega og labba þar með rösklega aukaspöl.
- Leggðu eins langt í burtu og þú getur. Ef þú keyrir í vinnuna eða ert að snúast, leggðu þá viljandi aðeins lengra í burtu frá vinnustaðnum eða búðinni en vanalega. Þetta virðist kannski ekki vera mikið, en yfir vikurnar og mánuðina þá safnast þessar mínútur saman.
- Gerðu þína eigin „rækt“. . . LESA MEIRA