7 hlutir sem gott er að hafa í huga ef þú ætlar að breyta um hárlit
Eva Dögg ristýra Tíska.is er með puttana í hárinu að þessu sinni. Það þarf góðan kjark til að fara útí miklar breytingar á hárlit en Eva Dögg leiðir okkur í gegnum hvað ber að hafa í huga áður en við tökum stóra skrefið:
Þegar kemur að því að breyta um háralit þá getur það verið snúið fyrir marga.
Áberandi hárlitir hafa verið vinsælir síðustu misserin en ef þú ert að hugsa um að breyta til þá eru nokkrir hlutir sem gott er að hafa í huga áður en þú mætir á hárgreiðslustofuna:
#1 Fólk mun taka eftir breytingum
Auðvitað mun fólk horfa ég meina þú ert kominn með annan lit en þegar þú hittir viðkomandi síðast og þessi er örugglega meira áberandi.
#2 Snyrtivörur
Þú þarft pottþétt að breyta nokkrum litum í snyrtibuddunni þinni. Hárlitur kallar á ákveðna liti. Búðu þig undir að að fá þér nýjan varalit og augnskugga.
#3 Fataskápurinn
Búðu þig undir það að litirnir í skápnum ganga ekki endilega við nýjan háralit. Ef þú ætlar að slá til þá er sniðugt að kaupa nokkrar grunnflíkur í nýjum litum sem ganga við nýja lúkkið.
#4 Hárnæring
Eftir mikla lita-meðhöndlun á hári þarftu að passa vel upp á það að næra hárið vel. Það getur verið ansi gott að skella sér í djúpnæringu á næstu hárgreiðslustofu eða að fjárfesta í einni góðri túpu.
#5 Nýr stíll
Auðvitað breytir þú um stíl því nýtt útlit eða nýr hárlitur gefur þér augljóslega nýjan stíl.
#6 Sjokkið
Ef þú ferð í skæra liti eins og bleika eða gerir drastíska breytingu þá máttu bóka það að þú venst þessu og það munu hinir gera líka.
#7 Bara hár
Ef þú ert alls ekki ánægð með útkomuna mundu þá að þetta er bara hár og það er auðvelt að laga lit...! Taktu bara áhættuna.
Birt í samstarfi við
Tengt efni: