Snilldar 8 mínútna æfing sem tónar allan líkamann
Stundum hefur maður bara ekki tíma fyrir ræktina.
Metaboost er átta þrepa rútína, gerð af þjálfaranum Valérie Orsoni, sem sameinar styrktarþjálfun og snöggar cardio sprengjur.
Snilldin við þessa rútínu er að hún tekur bara átta mínútur og er frábær viðbót við æfinguna þína eða þegar þú þarft að hressa þig við og kemst ekki á æfingu.
Gerðu hverja æfingu í eina mínútu án þess að hvíla og þú nærð að vinna með alla helstu vöðvahópana á átta mínútum.
Flash Dance
Smelltu uppáhaldslaginu þínu í eyrum og dansaðu eins og brjálæðingur. Því meira sem þú tekur á því meira brennir þú.
Jumping Jack
Hoppaðu sundur og saman í eina mínútu án þess að hafa áhyggjur af því hversu hátt eða langt í sundur þú hoppar. Einbeittu þér samt að innri lærvöðunum þegar þú dregur fæturna saman.
Upp og niður planki 1 mínúta
Byrjaðu í planka með hendur beint undir öxlum og fætur með mjaðmabreidd á milli. Farðu niður á hægri olnboga og svo vinstri og svo hægri upp og vinstri upp.
Fótalyfta 30x hvoru megin
Haltu þér í og lyftu fætinum upp til hliðar 30 sinnum hvoru megin. Hafðu tær upp í loft á leið upp og beina rist á leið niður.
Burpee mix 1 mínúta
Gerðu eina burpee eins og sýnt er í videoi og svo hoppar þú upp í loft og snýrð, með magavöðunum, efri búk til hægri og svo hoppar þú aftur og snýrð efri búk til vinstri. Svo gerir þú næstu og hoppar aftur með snúningnum o.s.frv. í eina mínútu.
Kassahopp 1 mínúta
Hoppaðu til hægri, svo áfram, til vinstri og síðan afturábak alltaf saman í fætur.
Krossbox 1 mínúta
Stattu bein með mjaðmabreidd milli fóta og örlítið beygð hné. Kýldu til vinstri og svo til hægri mjög snöggt og fast með alla magavöðva spennta til að snúa þér og halda við höggin.
Andalabb 1 mínúta
Farðu í djúpa hnébeygju án þess að hvíla rass á hælum og labbaðu með hendurnar út til hliðar fyrir jafnvægi.
Fylgstu með okkur á Instagram #Heilsutorg #Hreyfing