Að eignast frelsi til að drekka ekki.
Upphaf batasamfélagsins eins og við þekkjum það í dag hófst í október 1977 þegar SÁÁ var formlega stofnað. Fram að þeim tíma áttu alkahólistar og fjölskyldur þeirra , ekki í mörg hús að vernda til að fá hjálp.
Ekki renndi mönnum í grun um að SÁÁ ætti eftir að verða það stórveldi í meðferð á alkóhólistum sem það er orðið í dag og að það myndi byggjast hér upp stórt og öflugt batasamfélag sem tekur á móti þeim hundruðum einstaklinga sem ljúka meðferð hjá SÁÁ.
Eitt af því sem þakka má velgengni og framgangi samtakanna er stórhugur og framsýni þeirra sem hafa starfað hjá samtökunum, svo og velvilji íslensku þjóðarinnar og skilningur stjórnvalda á þörf þeirrar þjónustu sem samtökin komu með inní heilbrigðiskerfið á Íslandi.
Starfsemi SÁÁ er yfirgripsmikil og breið fylking fagstétta koma að meðferðinni.
Læknar, hjúkrunarfræðingar, Áfengis- og vímuefnaráðgjafar, sjúkraliðar, félagsráðgjafar, sálfræðingar sem hafa áraraða reynslu og þjálfun í sínu fagi.
Allar götur frá fyrstu dögum starfseminnar hefur SÁÁ haldið sjúklingabókhald sem gefur í dag glögga mynd af stöðu mála í gengum tíðina.
Sjúkrahúsið Vogur sem verður 30 ára á næstu vikum er flaggskip samtakanna, þar fer fram afeitrun og greining á áfengis og vímuefnavandanum svo og þeim fjölmörgu fylgikvillum þessa sjúkdóms. Dvalartími á Vogi er að meðaltali 10 dagar með þó nokkrum undantekningum þegar þess þarf og líkamleg heilsa sjúklinga kallar á það.
Að lokinn dvöl á Vogi bjóðast margvísleg úrræði fyrir sjúklinga til endurhæfingar og ennfremur býður SÁÁ þjónustu fyrir fjölskyldur þeirra sem koma til meðferðar.
Á Vík á Kjalarnesi er sérstök kvennameðferð.
Á Staðarfelli í Dalasýslu er 28 daga meðferð fyrir karla.
Á Vík á Kjalarnesi er sérstök meðferð fyrir karla 55 ára og eldri.
Unglingameðferð og Fjölskyldumeðferð er í Göngudeild SÁÁ Efstaleiti og á Akureyri.
Um þessar mundir er SÁÁ að ráðast í byggingu álmu við Vog fyrir þá sem eru í mestu þörf fyrri mikla umönnun vegna slæmrar heilsu og leitar nú eftir stuðningi landsmanna eins og oft áður.
Sigurður Gunnsteinsson skrifar
Styðjum starfsemi SÁÁ - Áfram Vogur !