Að finna til - Guðni með hugleiðingu á laugardegi
Til-finning? Hvað þýðir orðið?
Að finna til. En finna til hvers? Finna til sín. Finna fyrir sér.
Aðþrengt hjarta er eini sjúkdómurinn. En hver er þá eina bataleiðin?
Svarið er einfalt: Batinn felst í því að sleppa krumlunni af hjartanu og leyfa því að slá. Batinn felst í því að mæta inn í eigin mátt og elska sig af öllu hjarta, sama hvað gerist, sama hvar þú ert.
Um leið og þetta gerist í einlægni skapast meira rými fyrir hjartað. Rými er heimild og það opinberar vilja okkar til að þiggja ást og velsæld. Slagrými hjartans segir til um það leyfi sem við höfum veitt okkur í vitund, viljandi eða óviljandi.