Fara í efni

3 góð ráð til að hætta í sykrinum

Nikki Harden gefur okkur góð ráð til að hætta að borða sykur.
Góð ráð til að hætta í sykrinum
Góð ráð til að hætta í sykrinum

Nikki Harden gefur okkur góð ráð til að hætta að borða sykur.

Hún segir að vinir hennar kalli hana “substitute Queen” vegna þess að hún hjálpar þeim sem að eru að berjast við sykurfíkn í að breyta þeirri fíkn með hjálp annarskonar fæðu.

Hér fyrir neðan eru þrjár ansi góðar leiðir til að hætta að borða sykur.

1.     Prufaðu lúkufylli af hnetum og fræjum þegar sykurlöngunin kemur yfir þig

Vissir þú að sykurfíkn má breyta með því að borða hollar fitur? Slepptu kökum og teygðu þig í lúkufylli af hnetum. Þær eru afar saðsamar og innihalda dásamlegu fiturnar sem við þurfum á að halda. Annað sem má líka gera er að fá sér fræ, sólblóma eða graskersfræ.

2.     Slepptu ávaxta sælgætinu og fáðu þér ber

Ber eins og bláber, hindber eða jarðaber. Þau eru öll lág í kaloríum og hlaðin andoxunarefnum.

3.     Lærðu að elska súkkulaði smoothies

Ef þú elskar súkkulaði og tímir ekki að sleppa því þá þarftu þess ekki. En ekki fá þér samt súkkulaðistykki. Notaðu dökkt súkkulaði, helst 70% í þinn uppáhalds smoothie. Þú getur líka prufað þennan drykk:

Blandaðu saman 2 msk af raw kókó dufti, smá dash af Stevia, volgu vatni og möndlumjólk.

Já það er ekkert erfitt að hætta að borða sykur ef þú spáir í því.

Heimildir: mindbodygreen.com

Sendu okkur myndir á Instagram #heilsutorg