AÐ SETJA SÉR MARKMIÐ OG LÁTA DRAUMANA RÆTAST: BATINN MEÐ BATASTJÖRNUNNI Í KLÚBBNUM GEYSI
Klúbburinn Geysir er hvorki sjúkrastofnun né meðferðarheimili. Samt sem áður er í Klúbbnum Geysi að finna verkfæri til að vinna að því að bæta hag klúbbfélaga, sem allir eiga það sameiginlegt að hafa orðið fyrir skakkaföllum á lífsleiðinni af völdum geðraskana eða geðsjúkdóma.
Vissulega taka félagar klúbbsins þátt í vinnumiðuðum degi, sem er þáttur í því að bæta andlega og líkamlega heilsu. Til þess að styðja og auka möguleika félaga til bættra lífsgæða stendur félögum í Klúbbnum Geysi til boða að gera markmiðsáætlun, sem kölluð er Batastjarnan.
Með þátttöku í starfsemi klúbbsins og verkfærum Batastjörnunnar er unnið að því að ná persónulegum markmiðum. Þetta rímar við tíunda geðorðið sem fjallar um að setja sér markmið og láta drauma sína rætast. Batastjarnan hefur verið notuð á Bretlandi með góðum árangri. Klúbburinn Geysir fékk leyfi til þess að þýða efnið og nota það í starfsemi sinni.
Það er draumur þeirra sem þjást af geðrænum veikindum að endurheimta heilsuna. Batastjarnan, sem unnið er með í Klúbbnum Geysi, er hagnýtt verkfæri til þess að greina og meta raunhæf markmið. Sá sem fer í Batastjörnuna svarar spurningalista um ýmislegt sem tengist honum persónulega og umhverfi hans; allt frá sjálfsumhirðu til tengslanets. Þetta er myndræn og einföld aðferð til að skoða stöðu viðkomandi í fortíð og nútíð til að byggja upp markmið til framtíðar. Batastjarnan er verkfæri sem notað hefur verið á Bretlandi með góðum árangri.
Í Batastjörnunni eru fengin stig fyrir ýmsa flokka á skalanum einn til tíu. Eftir því sem lægra er skorað í einstökum flokkum þeim mun meira þarf að bæta sig á því sviði. Til dæmis má nefna að ef skorað er lágt í efnisflokkinum „sjálfsmynd og sjálfsálit“ er unið með þá þætti til þess að bæta þá. Eftir ákveðinn tíma, oftast þrjá til fjóra mánuði, er athugað hvernig til hefur tekist og hvort sett markmið hafi náðst.
Hvað varðar gerð markmiða, þá er undirstaða þess að þau náist sú að þau séu raunhæf og möguleg. Reglan um að markmið eigi að vera smart hefur verið fylgt í öðrum markmiðssetningum. Orðið smart er þá ritað með höfuðstöfum og stendur fyrir að markmið skulu vera: 1) Skýr; 2) Mælanleg; 3) Afmörkuð; 4) Raunhæf; og 5) Tímasett. Skýr markmið eru skiljanleg markmið. Mælanleg eru markmiðin til að maður viti hvenær maður er búinn að ná þeim. Afmörkuð eru markmiðin svo að maður sé ekki að færast of mikið í fang og þess vegna gefist upp. Á sama hátt gefst maður upp ef markmiðið er óraunhæft. Að lokum þurfa markmið að vera tímasett til að vita hvenær markmiði skal hafa verið náð og þá með raunhæfri tímasetningu þess. Á hinn bóginn eru samkvæmt Batastjörnunni langtímamarkmið aðeins samsafn fjölda skammtímamarkmiða. Markmiðin mega heldur ekki vera mörg og þung heldur skal setja sér fá en áhrifarík markmið. Þá er hægt að láta drauma sína um betra líf rætast. Raunhæfir draumar rætast.
Eftir Steinar Almarsson og Benedikt Gestsson fyrir hönd Klúbbsins Geysis.
Greinin er síðasta greinin af tíu í greinarröð jafn margra úrræða og/eða félaga á geðheilbrigðissviðinu á höfuðborgarsvæðinu um Geðorðin 10.