Fara í efni

Guðni skrifar um agann í hugleiðingu dagsins

Guðni skrifar um agann í hugleiðingu dagsins

Agi er því eitt af orðunum sem við þurfum að endurheimta og hreinsa af hinum venjubundna skilningi.

Agi þýðir að segja satt, að heitbinda sig til einhvers, að mæta fyrir sig og aðra í það sem við höfum heitbundið okkur til að gera. Þegar við heitbindum okkur ferli velsældar styrkist það með hverju litlu skrefi, við verðum verðug og heimild okkar eykst jafnt og þétt.

 

Agi þýðir að vera lofaður – að orð þitt er heilagt.

Þegar þú hefur öðlast heimild til að lifa í velsæld geturðu beitt þig aga eins og aga á að beita – í kærleika.

Þá ferðu ekki snemma í háttinn af því að þú ert að beita þig hörðu; ekki af því að þú verður að fara snemma að sofa! heldur vegna þess að þú skilur að allt snýst um orsök og afleiðingu og þegar þú ferð seint að sofa í kvöld þarftu að bera ábyrgð ef það leiðir til þreytu daginn eftir.

Þú fagnar þessari ábyrgð en vælir ekki undan henni – þess vegna ferðu snemma að sofa með bros á vör.