Algjör gúrka með humarsalati og kotasælu
Tilvalið á kjötlausum mánudegi.

Þessi réttur er svo tilvalinn á kjötlausum mánudegi.
Grilluð gúrka með humarsalati og kotasæluþ
Hráefni:
1 Gúrka
100g humar
3msk kotasæla
2msk majónes
1-2 msk saxaðar kryddjurtir t.d. kóriander eða graslaukur
Hn. Oddur salt og smá pipar
Sítrónuraspur af einni sítrónu
Leiðbeiningar:
Gúrkan er skorin langsum og kjarninn hreinsaður út. Best er að nota skeið við það.
Humar er skorin smátt og settur í skál ásamt kotasælu, majones, salti og pipar, kryddjurtum og sítrónuraspi.
Salati er raðað í miðja gúrkuna þar sem kjarninn var áður og gúrkan síðan sett á grillið eða grilluð inní ofni.
Höfundur uppskriftar:
Ylfa Helgadóttir
Eigandi veitingastaðarins Kopars og meðlimur í Kokkalandsliði Íslands
Uppskift af vef islenskt.is