Þegar þú elskar þig samt – þrátt fyrir tommuna sem alltaf virðist vanta, þrátt fyrir það sem þú gerir í lífinu og kallar mistök eða afglöp, þrátt fyrir minnimáttarkenndina, þrátt fyrir allt það neikvæða sem hringsnýst í höfðinu á þér; niðurrifið, fortölurnar – þegar þú elskar þig samt og lærir að skilja að ekkert er gott og ekkert er slæmt því allt er kærleikur, aðeins kærleikur og ekkert annað ... þá muntu umbreytast, uppljómast og glóa af fullum styrk eins og sólin á himninum. Þá mun ljós þitt skína innra með þér, í kringum þig, út frá þér – og þá breytirðu heimi þínum meira en þig getur nokkurn tímann grunað.
Tengdar fréttir