Fara í efni

Allt sem þú þarft - Hugleiðing dagsins

Allt sem þú þarft - Hugleiðing dagsins

Er blessun að vera á lífi?

Er gjöf að ég geti andað, núna, á þessu augnabliki?

Vil ég þakka fyrir lífið og andann, brosa út í bæði og finna ljósið streyma út í allar frumur líkamans?

Takk fyrir andardrátt­inn – takk fyrir lífið. Þetta er allt sem ég þarf.