Fara í efni

Alltaf þegar eitthvað vantar - hugleiðing á mánudegi frá Guðna

Mánudagur og hugleiðing frá Guðna.
Alltaf þegar eitthvað vantar - hugleiðing á mánudegi frá Guðna

Fjarvera er eina fíknin

Öll fíkn snýst um skort. Þessi skortur á sér mörg andlit. Við sendum okkur dulbúin, heimatilbúin skilaboð um að eitthvað vanti og þegar glöggt er skoðað má hæglega koma auga á margar slíkar leiðir sem samfélagið hefur samþykkt fyrir sitt leyti.
Þetta er blekking.

Það eina sem vantar ert þú – aðeins nándin við þig. Ekkert annað.

Alltaf þegar eitthvað vantar – þá vantar þig.
Alltaf þegar þig vantar eitthvað þá vantar þig, inn í augnablikið, inn í nánd við þig; nánd án viðnáms og án dóms.