Aukin þjónusta við krabbameinssjúklinga á LSH
Landspítalinn hefur brugðist einkar vel við ábendingum sem Krabbameinsfélagið kom á framfæri í haust um erfiða reynslu sjúklinga og aðstandenda af komum á bráðamóttöku spítalans.
Nú hefur verið aukið við sérhæfða fræðslu á bráðamóttöku um einkenni sjúklingahópsins og viðbrögð við þeim og unnið er að auknu samstarfi sérfræðinga á lyflækningasviði við starfsfólk bráðamóttökunnar. Þá verður farið verður yfir komur og endurkomur til að greina umfang og mögulegar breytingar á ákveðnum tímabilum.
Þetta er meðal þess sem kom fram á fundi framkvæmdastjóra Krabbameinsfélags íslands og forstöðumanns Ráðgjafarþjónustu félagsins með fulltrúum Landspítala þann 29. nóvember síðastliðinn. Fyrir hönd Landspítala sátu fundinn Páll Matthíasson, forstjóri LSH, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri flæðisviðs, Hlíf Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri lyflækningasviðs og Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga.
Bakvakt sérfræðinga og fimm daga líknardeild
Upp úr áramótum verða opnuð 3 rými á fimm daga líknardeild, sem sérstaklega eru ætluð fólki sem fær þjónustu frá HERU í heimahúsum en þarfnast tímabundið frekari þjónustu. Með þessum rýmum er ætlunin að fækka komum þessa hóps á bráðamóttöku.
Í janúar verður mikil breyting á þjónustu við fólk í krabbameinsmeðferð því þá verður komið á sérstakri bakvakt sérfræðinga sem sjúklingar og aðstandendur munu geta hringt í eftir lokun göngudeildar, frá fjögur á daginn til miðnættis, til að fá ráðgjöf um ýmis mál er geta komið upp tengt veikindum og/eða krabbameinsmeðferð. Í framhaldi af þeirri ráðgjöf verður hægt að bóka fólk í bráðatíma á deild 11B ef þörf krefur.
„Við hlökkum til að geta sagt enn betur frá þessum úrræðum sem verða án efa mjög til bóta og geta fækkað komum á bráðamóttöku,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins: „Við stefnum að því að fá fulltrúa spítalans til að kynna þá auknu þjónustu sem af þessu leiðir í byrjun næsta árs.“
Eins og ítrekað hefur verið fjallað um vantar fjölda hjúkrunarfræðinga til starfa á spítalanum og það hefur margvíslegar afleiðingar. Ein er sú að á krabbameinslækningadeild 11-E eru einungis 10 af 15 rúmum í notkun.
„Það er auðvitað grafalvarlegt mál og þýðir meðal annars að krabbameinssjúklingar þurfa að leggjast inn á aðrar deildir,“ segir Halla; „önnur afleiðing er að loka þarf hjartagátt spítalans sem aftur leiðir til þess að aukinn fjöldi sjúklinga mun þurfa að sækja þjónustu á bráðamóttöku spítalans í Fossvogi.“
Ljóst er að stöðugt þarf að vera vakandi fyrir þörfum einstaklinga sem greinast með krabbamein og hvernig hægt er að mæta þeim á faglegan og árangursríkan hátt.
Krabbameinsfélag Íslands á í góðu samstarfi við starfsfólk Landspítala sem leggur sig fram um að vinna að úrbótum. Félagið fagnar því að ákveðið hefur verið að ofangreindur hópur hittist reglulega til að fara yfir þau mál sem varða þjónustu við sjúklingahópinn.