Pestóbaka með bökuðu grænmeti
Ég dáist að fólki sem byrjar árið á heilsuátaki. Ég skil ekki hvernig það er hægt. Hjá mér snýst þetta oftast um að dekra meira við mig, að láta meira eftir mér og njóta meira. Að gera mánuðinn eins góðan og ég mögulega get. Ég borðaði súkkulaði eftir morgunmatinn alla síðustu viku og fannst það dásamleg byrjun á deginum. Síðan gerði ég pestóböku í kvöldmatinn eitt kvöldið og fannst hún vera æðislegur endir á deginum.
Það er eins með þessa uppskrift og svo margar aðrar, hún hefur verið í fórum mínum í fleiri ár og ég furða mig á því hvað það tók mig langan tíma að koma því í verk að elda hana. Bakan er nefninlega æðislega góð. Ég held að uppskriftin komi upphaflega úr sænska matreiðslublaðinu Allt om mat, en ætla ekki að sverja fyrir það.
Mér þykir alltaf gaman að bera bökur fram því þær eru svo fallegar á borði, sérstaklega þegar þær eru bakaðar í bökuformum með lausum botni (þau fást víðast hvar fyrir lítinn pening).
Pestóbaka með bökuðu grænmeti
Skelin:
- 3 dl hveiti
- 125 g smjör, kalt úr ísskáp
- 2 msk kalt vatn
Blandið hveiti og smjöri saman í grófa mylsnu í matvinnsluvél, með gaffli eða með fingrunum. Bætið vatninu saman við og vinnið snögglega saman í deig. Þrýstið deiginu í botn á 24 cm bökumóti með lausum botni og stingið yfir bontinn með gaffli. Látið standa í ísskáp í 30 mínútur.
Fyllingin:
- 2 paprikur, gul og rauð
- 2 rauðlaukar
- 1 kúrbítur
- 1 msk ólívuolía
- salt
- svartur pipar
- 3 egg
- 2 dl mjólk
- 1 dl pestó
Hitið ofn í 250°. Skerið paprikur í bita, rauðlauk í þunna báta og kúrbít í sneiðar. Setjið á ofnplötu, dreypið ólívuolíu yfir og kryddið með salti og pipar. Bakið í miðjum ofni í 15-20 mínútur.
Hrærið saman eggjum, mjólk og pestó.
Þegar grænmetið hefur bakast er ofnhitinn lækkaður í 200°. Forbakið bökuskelina í miðjum ofni í um 10 mínútur. Setjið þá grænmetið í botninn og hellið eggjablöndunni yfir. Bakið í miðjum ofni í 35-40 mínútur.
Berið bökuna fram með góðu salati og jafvel salami, hráskinku og ólívum.
Ef þú vilt hafa samband þá er ég með netfangið svavag@gmail.com
Bestu kveðjur, Svava. www.ljufmeti.is
Allt hráefni í þessa uppskrift fæst í