Beikonvafðir þorskhnakkar með brokkolísalati
Ég fékk þennan rétt hjá mömmu eitt sinn.
Beikon á mjög vel með þorskhnökkunum.
Innihald: / þorskhnakkar / beikon
- Reiknið með einum til tveim bitum af fiski á mann.
- Skerið niður í fallega bita og vefjið beikoninu utan um.
- Grillið í nokkrar mínútur á hvorri hlið, passa vel að ofelda ekki.
Kartöflur: / 1 sæt kartafla / 1 gulrófa / 1 sellerírót / 1 rauðlaukur / smá olía / smá salt
- Grænmetið er skorið niður í bita og sett í eldfast mót.
- Setjið olíu yfir, saltið og kryddið að vild og setjið inn í ofn á 180gr í 20-30 mín.
Brokkolísalat: / 150 g brokkolí / 2 dósir (200 g) sýrður rjómi / 1 rauðlaukur / 1 msk akasíu hunang / 2 msk rúsínur / salt og pipar.
- Brokkolíið mýkt í sjóðandi vatni í ca. 2 mín og kælt.
- Rauðlaukur fínt saxaður og svo er öllu blandað saman.
- Æðislega gott salat með fisk.
Ég fékk þennan rétt hjá mömmu eitt sinn er ég fór norður í heimsókn og hann var svo góður að ég varð að láta hann hér inn. Ég borða afar sjaldan beikon en þetta var alveg dásamlega gott og brokkolísalatið frábært. Ég væri líka til í að prófa að nota hráskinku utan um fiskinn en beikonið átti mjög vel með þorskhnökkunum.
Verði ykkur að góðu.
Efni: Valdís Sigurgeirsdóttir, www.ljomandi.is - Svo ljómandi gott…