Bláberja pæjur - Mæðgurnar
Nú eru margir komnir úr berjamó með krukkur og frystikistur fullar af nýtíndum berjum. Þvílíkur lúxus að geta skroppið upp í fjallshlíð og tínt næringarrík villt ber! Berin eru holl og góð, en hluti af hollustunni er án efa fólginn í útiverunni, tengingunni við náttúruna og samverustundum með börnunum.
Aldrei þessu vant gáfum við okkur ekki tíma fyrir í berjamó í ár, en okkur klæjar engu að síður í fingurna að útbúa eitthvað gott úr berjum, eins og við erum vanar á þessum árstíma. Í fyrra löguðum við dásamlega bláberjasultu ogmeinholla krækiberjasaft úr berjum sem við tíndum sjálfar. Í vikunni keyptum við okkur bakka af nýtíndum íslenskum bláberjum og útbjuggum þessar dýrindis bláberjapæjur. Mmmm....
Bláberja pæjur
Botn
- 1 b pekanhnetur
- 1 b mórber
- ¼ tsk vanilla
- 1 msk kókosolía
- Setjið pekanhnetur, mórber og vanillu í matvinnsluvél og blandið saman.
- Setjið kókosolíuna útí og klárið að blanda þar til þetta klístrast saman.
- Þjappið niður í 6 lítil form.
Fylling
- 2 b bláber
- 1 ½ b kasjúhnetur sem eru búnar að liggja í bleyti í 2 klst
- 1 msk sítrónusafi
- 1 msk hlynsíróp
- 3 msk kókosolía
- smá sjávarsaltflögur
- Setjið bláberin í blandara og blandið þar til þau maukast.
- Bætið þá kajsúhnetunum útí ásamt sítrónusafa og hlynsírópi og blandið vel. Ef blandarinn ykkar er lúinn má nota matvinnsluvél.
- Endið á að setja kókosolíuna útí ásamt sjávarsaltinu og klárið að blanda.
- Hellið yfir botnana og setjið inn í frysti og látið stífna.
- Skreytið með ferskum berjum og berið fram með kókosrjóma, eða þeim rjóma sem ykkur finnst bestur.
Kókosrjómi - 2 aðferðir
Setjið innihald úr 1 dós af kókosmjólk í blandara ásamt smá vanillu og blandið vel. Hellið þessari blöndu í rjómasprautu og setjið gashylki í. Til búið.
EÐA
Setjið 1 dós af kókosmjólk inn í ísskáp í nokkrar klukkustundir, opnið dósina og setjið þykka hlutann af kókosmjólkinni í hrærivél ásamt smá vanillu og þeytið eins og þið gerið við venjulegan rjóma.
Birt í samstarfi við