Bleiki sjeikinn frá heilsumömmunni
Bragðast eins og ís.
Bleikur er hann þessi
Það er nú að vísu dottið í nóvember en hvað um það, einn bleikur drykkur í tilefni þess að október var bleikur mánuður.
Þessi er svo einfaldur og góður, næstum eins og ís sögðu tvær vinkonur í gær :)
Hráefni:
- 3-4 dl frosin ananas (mæli með Crops hann er svo góður, í rauðu pokunum)
- 3-4 dl frosin jarðaber
- 2 dl kókosmjólk (þykk)
- 1/2 avakadó
- 2 msk möndlusmjör
- 3-4 dl vatn
Aðferð:
Allt sett í blandara og blandað vel saman
Uppskrift frá heilsumamman.com