Bleiki dagurinn 2014 er fimmtudaginn 16. október
Október er mánuður Bleiku slaufunnar, árveknis- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum.
Bleikur október
Október er mánuður Bleiku slaufunnar, árveknis- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum. Af því tilefni biðjum við alla landsmenn um að klæðast einhverju bleiku fimmtudaginn 16. október eða hafa bleikan lit í fyrirrúmi þann dag. Með því sýnum við samstöðu í baráttunni.
Bleiki dagurinn hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár - ekki síst á vinnustöðum þar sem fólk bregður á leik og heldur t.a.m. keppni um skemmtilegasta klæðaburðinn, tekur upp myndbönd o.fl. Við hvetjum fólk því til að njóta saman dagsins og vekja um leið athygli á árveknisátakinu.
Okkur þætti vænt um ef þið mynduð taka þátt í þessu með okkur og senda okkur síðan myndir á sigurlaug@krabb.is til að setja inn síðurnar okkar,heimasíða krabbameinsfélagsins og á síðu bleiku slaufunnar og einnig á Facebook. Einnig er hægt að merkja myndir með #bleikaslaufan.
Klæðumst bleiku til tákns um samstöðu í baráttunni gegn krabbameinum hjá konum!
Heimild: krabb.is
Setjið myndir á Instagram af ykkur í einhverju bleiku og sýnum stuðning #heilsutorg.