Fara í efni

Blóðbankinn fagnar 60 ára afmæli í dag

Í tilefni dagsins verður móttaka að Snorrabraut 60, 3. hæð kl.15-17. Allir velunnarar Blóðbankans eru velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir.
Blóðbankinn 60 ára
Blóðbankinn 60 ára

Í tilefni dagsins verður móttaka að Snorrabraut 60, 3. hæð kl.15-17.

Allir velunnarar Blóðbankans eru velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir.

Sveinn Guðmundson, yfirlæknir Blóðbankans og Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra munu segja nokkur orð í tilefni dagsins.

Móttaka blóðgjafa er opin frá 8-19.

Blóðbankinn var stofnaður árið 1953 og hóf starfsemi sína við blóðsöfnun, geymslu og afgreiðslu blóðs þann 14.nóvember 1953 í sérhönnuðu húsnæði við Barónstíg í Reykjavík. Í maí árið 2007 flutti Blóðbankinn stafsfemi sína að Snorrabraut 60, en hafði þá um 20 ára skeið búið við mikil þrengsli og óhagræði í húsnæðismálum.

Blóðbankinn hefur átt samleið með íslensku þjóðinni í 60 ár.

Blóðbankinn er með sönnu "banki allra landsmanna", enda ein af grunnstoðum íslenska heilbrigðiskerfisins.

Tæplega 3.000 manns þyggja blóðhluta á ári hverju, Blóðbankinn sér um blóðsöfnun, vinnslu, prófun, geymslu og afgreiðslu allra blóðhluta fyrir íslenskt þjóðfélag þannig að öryggi blóðþega sé tryggt í hvívetna. Þjónustunet Blóðbankans er um allt land. Blóðbankinn er með starfsstöðvar í Reykjavík, Akureyri og í Blóðbankabílnum og styður einnig við starfsemi blóðstöðva sjúkrahúsa á landsbyggðinni.

Á Íslandi eru í dag tæplega 7.000 virkir blóðgjafar og safnar Blóðbankinn rúmlega 12.000 heilblóðseiningum á ári. Úr heilblóðseiningum eru unnir blóðhlutar svo sem rauðkornaþykkni, blóðvökvi (plasma) og blóðflögur. Að auki er safnað sérhæfðum blóðlutum í blóðfrumuskiljun (aferesis) og eru um 300 einstaklingar sérhæfðir gjafar í aferesis og gefa meira en 1.000 blóðhluta með þeim hætti.

Hér á heimasíðuna er komið margvíslegt fræðsluefni um starfsemina og í tilefni afmælisins verða birtar margar nýjungar á síðunni s.s greinargott yfirlit um starfsemistölur á 60 ára vegferð Blóðbankans. Ennfremur eru tenglar á Sögu Blóðbankans sem Atli Sigþórsson, sagnfræðingur og rithöfundur hefur skráð.

Við munum halda áfram að setja inn nýtt efni og uppfæra gamal allt afmælisárið.

HÉR má sjá síðu Blóðbankans.