Bólgusjúkdómar í hlust
Hvað er hlustargangsbólga?
Bólga eða exem í hlustinni.
Hver er orsökin?
Hlustargangsbólga er oftast vegna bakteríu, veiru- eða sveppasýkingar í hlustinni. Þetta stafar oft af því að verndandi fituefni, sem eyrað gefur frá sér eru horfin. það getur m.a. verið vegna of mikils hreinlætis. Skemmd á hlustinni getur einnig verið hluti af orsökinni.
Hver eru einkennin?
- Yfirleitt byrjar þetta með kláða í eyranu.
- Mjólkurkenndur vökvi eða vatnskenndur getur lekið úr eyranu.
- Verkir í eyranu, sem versna þegar þrýst er á brjóskið framan við eyrað og þegar kjálkinn er hreyfður.
- Hlustin getur þrengst vegna bólgumyndana.
- Í sumum tilfellum fylgir þessu vægur hiti.
- Í erfiðari tilfellum skerðist heyrnin.
Hver er orsökin?
- Óhreint sundlaugarvatn.
- Klórvatn sem þurrkar hlustina.
- Hvers kyns busl, ef höfðinu er stungið ofan í vatnið.
- Erting frá aðskotahlutum, eins og eyrnapinnar eða eyrnatöppum sem fara langt inn í eyrað.
- Mikil eyrnamergsframleiðsla.
- Ofnæmistilhneiging, húðofnæmi.
- Sykursýki eða aðrir sjúkdómar, sem draga úr virkni ónæmiskerfisins.
- Hárúði eða hárlitur sem fer inn í hlustina.
Hvað er hægt að gera til að forðast hlustargangsbólgu?
- Forðist að hreinsa eyrað með eyrnapinnum, hreinsiefnum eða öðru þess háttar.
- Hafi viðkomandi fengið hlustargangsbólgu áður er mjög gott að meðferð hefjist strax við fyrstu einkenni.
Ráðleggingar
Forðast skal að vatn fari í eyrun fyrstu þrjár vikurnar eftir að einkennin hverfa. Notuð sé sundhetta eða vatnsheldir eyrnatappar þegar farið er í bað. Algengt er að hlustargangsbólga taki sig upp aftur.
Hvað gerir ástandið verra?
Bólgan getur valdið miklum verkjum í eyranu. Bólgan getur orðið langvarandi og erfitt að meðhöndla hana. Ígerð getur komið í hlustina.
Batahorfur
Yfirleitt er hægt að lækna bólguna á 7 til 10 dögum.
Hver er meðferðin og hvaða lyf eru í boði?
Mikilvægast er að forðast frekari ertingu á húðinni í eyranu, bæði hvað varðar notkun eyrnapinna sem og nudd með fingrum þar sem slíkt dregur úr batanum. Læknirinn/hjúkrunarfræðingurinn mun sennilega hreinsa eyrað. Eyrnadropar og –smyrsl sem innihalda stera, sýklalyf og jafnvel sveppadrepandi efni koma oft að góðum notum.
Ciloprin cum anaesthetico® | Decadron® med Neomycin | Hydrocortison med Terramycin® |
Polymyxin-B | Locacorten®-Vioform | Sofradex® |
Eyrnadropar; barksterar sem eru bólgueyðandi;
Decadron® | Otomize® |
Sterk verkjalyf, geta í sumum tilfellum verið nauðsynleg. Sýklalyf til inntöku geta verið nauðsynleg ef bólgan er mikil.
Heimild: doktor.is