Bragðmikið kúskús salat með ofnbökuðu grænmeti, avocado og parmesan osti frá Eldhúsperlum
Ég hvet ykkur til að prófa að hafa grænmetisrétt á borðum allavega einu sinni í viku ef þið hafið ekki vanist því.
Það er bæði hagstætt og ljúffengt og alltaf upplagt að nota til dæmis grænmetisafganga sem liggja óhreyfðir í grænmetisskúffunni í staðin fyrir að henda þeim.
Ég notaði hreint kúskús í þennan rétt sem ég kryddaði sjálf. Það væri líka vel hægt að kaupa tilbúið kryddað kúskús. Prófið bara!
Bragðmikið kúskús salat með ofnbökuðu grænmeti, lárperu og parmesan osti (fyrir 3-4):
- 200 gr hreint kúskús – kryddað með 1 tsk oregano, 1 tsk paprikukryddi, 1/4 tsk kanil, 1 tsk grófu sjávarsalti, 1/2 tsk svörtum pipar, 1/2 tsk cummin, 1/2 tsk kóríander og 1/4 tsk þurrkuðum chilliflögum (líka hægt að nota kryddað kúskús)
- 1 -2 öskjur konfekt tómatar eða piccolo tómatar (magn fer þó eftir smekk)
- 2 vænir rauðlaukar
- 1 msk ólífuolía
- 2 msk balsamikedik
- 1 msk hunang
- Sjávarsalt og pipar
- Nokkrar sneiðar grilluð marineruð paprika úr krukku (líka hægt að nota t.d þistilhjörtu eða ólifur)
- 2 lárperur
- Rifinn ferskur parmesan ostur
- Góð lúka fersk steinselja og graslaukur, smátt saxað
- 1 sítróna skorin í báta
Aðferð:
Hitið ofn í 220 gráður.
Byrjið á að setja kúskúsið í skál og krydda það. Blandið vel saman.
Hellið sjóðandi vatni yfir kúskúsið. Ég mæli aldrei vatnið heldur helli þar til vatnið þekur alveg kúskúsið og nær ca. 1/2 cm yfir það.
Leggið disk eða plastfilmu yfir skálina og látið standa í 10 mínútur eða á meðan þið gerið restina af réttinum.
Skerið laukinn í tvennt og svo í dálítið þykkar sneiðar.
Skerið tómatana í tvennt. Setjið laukinn og tómatana á bökunarplötu.
Hellið ólífuolíu, balsamikediki og hunangi yfir, saltið og piprið og veltið grænmetinu vel uppúr.
Bakið í 10-15 mínútur eða þar til laukurinn hefur tekið lit og karamelliserast í hunangs-edik blöndunni.
Skerið grilluðu paprikuna í strimla. Ýfið kúskúsið upp með gaffli og hellið því á fat.
Setjið grænmetið yfir og blandið aðeins saman.
Skerið lárperuna í teninga og dreifið yfir ásamt vel af rifnum parmesan osti og saxaðri steinselju og graslauk. Kreistið smá sítrónusafa yfir og berið fram með sítrónubátum.
Uppskrift af síðu eldhusperlur.com