Brokkolíbaka með geitaosti frá Eldhúsperlum
Að gera böku getur verið góð skemmtun. Ég segi það aftur eins og við síðustu böku að bökur hafa ekki átt sérstaklega mikið erindi upp á mín eldhúsborð hingað til.
Það er tilhugsunin um að gera flókið bökudeig og standa við að fletja það út með tilheyrandi hveitistráningu sem forðaði mér frá þessari iðju.
Þetta er allavega ekki iðja sem ég myndi kjósa að gera á virkum degi þegar kvöldmatur þarf að vera kominn á borðið helst undir 30 mínútum. Engu að síður finnast mér bökur alveg einstaklega góður matur og þá sérstaklega grænmetisbökur.
Maður fær einmitt oft svo góðar bökur á hinum mörgu góðu grænmetisstöðum borgarinnar. Innblásturinn að þessari böku er einmitt komin frá einum slíkum þar sem ég fékk alveg einstaklega góða brokkolíböku um daginn og ég varð að búa til eitthvað svipað heima. Geitaosturinn gefur þessari böku alveg rosalega gott bragð og smá svona spari stemmingu. Honum má þó vel sleppa, eða nota t.d fetaost eða rjómaost í staðinn. Þetta er sama bökudeig og ég notaði í fyrrnefnda tómata- og spínatböku. Það er mjög einfalt að gera og þarf ekkert að fletja út.
Bökubotn:
- 200 grömm gróft spelt eða heilhveiti
- Salt á hnífsoddi og smá pipar
- 80 grömm smjör, skorið í litla teninga
- 1/2 dl heitt vatn (kannski minna, setjið smátt og smátt saman við)
Aðferð:
Ofn hitaður í 180 gráður með blæstri. Allt innihaldið í bökubotninn sett í skál og unnið saman með höndunum. Þegar það er komið saman er því þrýst í botninn og aðeins upp með hliðunum á eldföstu móti eða lausbotna bökuformi. Pikkað með gaffli hér og þar. Þetta er svo bakað í 10 mínútur. Tekið úr ofninum og hitinn lækkaður í um 160-170 gráður. Fer svolítið eftir hita á ofnum. Ég hef minn á 160 gráðum með blæstri.
Fylling:
- 350 grömm brokkolí, skorið í fremur smáa bita
- 2 vorlaukar smátt saxaðir
- 5 egg
- 2,5 dl matreiðslurjómi eða 1 peli kaffirjómi
- 1 poki gratínostur
- 1 tsk sjávarsalt
- 1/2 tsk pipar
- 1 msk dijon sinnep
- 1/4 tsk muldar chilliflögur (red chilli flakes)
- 50 gr geitaostur (má sleppa)
Aðferð: Byrjið á að sjóða vatn með dálitlu salti í meðalstórum potti. Skerið brokkolíið niður og setjið út í sjóðandi vatnið og sjóðið í um 3 mínútur. Hellið þá vatninu af og látið ískalt vatn buna á brokkolíið þannig að það snöggkólni. Sigtið vatnið frá, þerrið brokkolíið aðeins og setjið það svo í bökubotninn. Með þessari aðferð helst brokkolíið fallega grænt. Stráið svo söxuðum vorlauknum jafnt yfir bökubotninn.
Hrærið saman eggin, matreiðslurjóma, gratínost, salt, pipar, dijon sinnep og chilli flögur. Hellið yfir brokkolíið. Dreifið því næst geitaostinum jafnt yfir bökuna með teskeið. Bakið í 35 mínútur. Leyfið bökunni að kólna í um 10 mínútur áður en hún skorin.
Uppskrift af vef eldhusperlur.com