Brúarhlaup á Selfossi
Hið árlega Brúarhlaup á Selfossi fer fram laugardaginn 8. ágúst 2015. Árið 2014 var dagsetningu hlaupsins og hlaupaleiðum breytt og fer það nú fram, annað árið í röð, á sama tíma og Sumar á Selfossi og Olís mót í knattspyrnu fer fram á Selfossi. Mikil ánægja var með breytingarnar fyrir ári síðan og skapaðist mikil stemmning á Selfossi í tengslum við hlaupið.
Vegalengdir
Hlaupavegalengdir eru 10 km, 5 km, 2,8 km ásamt 800 m Sprotahlaupi fyrir krakka 8 ára og yngri.
Einnig fer fram keppni í 5 km hjólreiðum (skemmtihjólreiðar, ekki hröð keppnisbraut).
Allar hlaupaleiðir eru löggildar og mældar upp af viðurkenndum aðila. Tímataka er í öllum vegalengdum (flögur í 5 km og 10 km), bæði hlaupum og hjólreiðum.
Tímasetningar og staðsetningar
- Hlauparar í 10 km verða ræstir á Ölfusárbrú kl. 11.30.
- Hlauparar í 5 km hlaupi verða ræstir kl. 12.00 undir/við Ölfusárbrú.
- Keppendur í 5 km hjólreiðum verða ræstir kl. 11 undir/við Ölfusárbrú.
- Keppendur í 2,8 km skemmtiskokki verða ræstir í Miðbæjargarði Selfoss kl. 11.30.
- Keppendur í 800m Sprotahlaupi verða ræstir í Miðbæjargarði Selfoss kl. 13.00.
Allir þátttakendur koma í mark í miðbæjargarði Selfoss.
Flokkaskipting
Flokkaskipting er í 10 km hlaupi og eru veittir verðlaunapeningar fyrir 1.-3. sæti í hverjum aldursflokki.
Kort af leiðinni
Stærra kort af leiðinni
Skráning og verð
Skráning fer fram á hlaup.is og í Landsbankanum á Selfossi meðan forskráning er í gangi, en einnig á hlaupadag frá kl. 09.00 í Landsbankanum á Selfossi. Forskráningu lýkur á netinu á hlaup.is, föstudaginn 7. ágúst kl. 16.
Skráningargjöld í forskráningu:
- 1.200 kr fyrir 16 ára og eldri í 2,8 km, 5 km og hjólreiðar.
- 800 kr fyrir 15 ára og yngri 2,8 km, 5 km og hjólreiðar.
- 800 kr í 800m krakka Sprotahlaup
- 3.500 kr fyrir alla þátttakendur í 10 km hlaupi.
Veittur er fjölskylduafsláttur þannig að hjón borga fullt gjald, fyrir sig og tvö börn, en ef um fleiri börn er að ræða fá þau frítt.
Skráningargjöld eftir að forskráningu lýkur
- 1.700 kr fyrir 16 ára og eldri í 2,8 km, 5 km og hjólreiðar.
- 1.200 kr fyrir 15 ára og yngri 2,8 km, 5 km og hjólreiðar.
- 1.200 kr í 800m krakka Sprotahlaup
- 4.000 kr fyrir alla þátttakendur í 10 km hlaupi.
Þeir sem ekki vilja fá bol merktan hlaupinu geta afþakkað hann í forskráningu og lækkar þá keppnisgjaldið um 500 kr. Bolirnir eru úr dry-fit efni sem notað er í hlaupafatnað.
Afhending keppnisgagna, til þeirra sem hafa forskráð sig, er á hlaupadag við Landsbankann á Selfossi, frá kl. 09.00. Allir þátttakendur fá við skráningu keppnisbol og verðlaunapening við komu í mark.
Verðlaun
Verðlaunapeningar eru veittir fyrir þrjú fyrstu sætin í 10 km hlaupi í öllum aldursflokkum, bæði kyn. Einnig eru veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í 10 km hlaupi, bæði kvenna og karla. Einnig eru veittir verðlaunapeningar fyrir þrjú fyrstu sætin í öðrum vegalengdum óháð kyni. Að auki verða dregin út útdráttarverðlaun um leið og keppendur koma í mark. Verðlaunaafhending fer fram í miðbæjargarði Selfoss, við endamark hlaupsins, kl.13.30.
Annað
Allir keppendur fá frítt í sunda eftir hlaup, í boði sveitarfélagsins Árborgar, gegn framvísun keppnisnúmers. Úrslit verða birt á hlaup.is. Frekari upplýsingar gefur Helgi Sigurður Haraldsson, helgihar@simnet.is og í síma 825-2130.