Grænn með kókós, mangó, grænkáli og lime
Hljómar vel í mínum eyrum.
Hljómar vel í mínum eyrum.
Mangó er súper ríkt af beta-carotene og trefjum. Í þessum drykk má finna 10,5 gr af trefjum.
Grænkál er ríkt af próteini og frábær uppspretta af kalki og járni.
Uppskrift er fyrir einn. Drykkur númer 24.
Hráefni:
1 mangó – án hýðis og steins
½ lime – án hýðis og steina
½ frosin banani
3 bollar af grænkáli
Kókósmjólk eftir smekk – má nota aðra mjólk
Leiðbeiningar:
- Byrjaðu á að setja vökvann í blandarann og svo mjúku ávextina og láttu hrærast vel saman.
- Bættu nú öllu grænu saman við og blandaðu á góðum hraða í 30 sekúndur eða þar til drykkur er mjúkur.
Þessi uppskrift er frekar stór þannig að það má geyma afganginn sem ekki er drukkinn í lokuðu íláti í ísskáp í 24 tíma.
Njótið vel!