Fara í efni

Næringarrík sætindi – 30. mars – Lifandi markaður með heilsumömmunni

Námskeið með heilsumömmunni.
Næringarrík sætindi – 30. mars – Lifandi markaður með heilsumömmunni

Langar þig að læra að búa til næringarríkara sælgæti ?  Fá fullt af hugmyndum af gotteríi sem nærir, hressir og bætir í stað þess að gera þig þreytta/an og slappan/n.  Framundan er sá árstími þar sem sælgæti og súkkulaði flæðir út um allt og frábært að snúa vörn í sókn með næringarríkum sætindum.

Við gerum súkkulaði og útfærum það á ýmsa vegu, gerum ofur orkukúlur sem eru frábærar í hversdagsleikanum þegar okkur vantar smá orkubita, karamellukubba sem allir krakkar elska (og fullorðnir líka) og einnig fínasta konfekt og hráköku sem sómir sér á hvaða veisluborði sem er.

g

Við ætlum að ræða um það hvernig við getum gert baksturinn heilsusamlegri og skoða hvaða mismunandi sætu er hægt að nota í staðinn fyrir hvíta sykurinn.

Mánudagur 30.mars kl.18.00-20.30 – Lifandi Markaði, Borgartúni 24 (salur á neðri hæð)

Verð: 5900 kr

Innifalið er:  Uppskriftir og fullt af gómsætu smakki.  Einnig fylgir með Rafrænt Uppskriftarhefti með rúmlega 40 mismunandi uppskriftum,

Skráning á: heilsumamman@gmail.com eða í gegnum facebook síðu heilsumömmunar.

Ath. Munið að stéttafélög greiða allt að helming af námskeiðisgjöldum !