7 einkenni sem ekki ætti að hunsa
Nú er að ganga í garð innflúensutími og því vert að hlusta á líkamann en það er margt annað sem þarf að hlusta eftir. Oft heyrum við frásagnir af fólki sem hefur fundið fyrir einkennum, talið þau flensuleg en látið hjá líða að láta ahuga málið fyrr en í óefni er komið.
Þetta gerist þrátt fyrir að við vitum að verkur fyrir brjósti, skyndilegur missir sjónar eða máls eða mikil magaverkur þarfnast bráðrar athygli læknis. Það getur því vafist fyrir sumum hvaða einkenni borgar sig að láta athuga hjá lækni. Hér eru 7 einkenni sem betra er að láta athuga.
Númer 1: Óútskýrt þyngdartap
Það hljómar kannski eins og draumur að missa þyngd án þess að reyna, en í raunveruleikanum þá getur verið um alvarlegt sjúkdómseinkenni að ræða. Ef þú hefur misst meira en 10% af þyngd seinustu 6 mánuði án þess hafa breytt lífsstíl á nokkurn hátt (auka hreyfingu eða breyta mataræði) þá er betra að láta læknir athuga þig.
Óúskýrt þyngdartap gæti orsakast af ýmsum ástæðum, eins og ofvirkum skjaldkirtli, sykursýki, þunglyndi, lifrarsjúkdóm, krabbamein eða meltingarsjúkdóm þar sem líkaminn nær ekki að taka upp næringu.
Númer 2: Þrálátur hiti eða mjög hár hiti
Það er óþarfi að hafa áhyggjur af öllum sótthita. Hiti spilar lykilhlutverk í að berjast á móti sýkingum. En ef þú hefur verið með hita í meira en 3 daga þá er betra að tala við lækni. Þrálátur hiti getur verið einkenni leyndrar sýkingar, sem gæti verið allt frá þvagfærasýkingu til berkla. Sum krabbameinstilfelli, eins og eitlakrabbamein, valda þrálátum hita. Einnig geta sum lyf valdið þessu vandamáli.
Ef þú hefur háan hita, 39,4°C eða hærri, þá ættir þú að tala við læknirinn þinn.
Númer 3: Stuttur andadráttur (mæði)
Stuttur andadráttur sem virkar alvarlegri en það sem stíflað nef eða æfing myndi valda getur verið vísir að vandamáli. Ef þú átt erfitt með að ná andardrættinum þá ættir þú falast samstundis eftir hjálp. Einnig ættir þú að sækjast eftir hjálp ef andardráttur er erfiður þegar þú liggur útaf.
Ástæður fyrir mæði geta verið meðal annars langvinn lungnateppa, þrálátt bronkítis, astmi, lungnabólga, blóðtappi í lungum, sem og önnur hjarta- eða lungnavandamál. Stuttur andardráttur getur einnig verið einkenni kvíðakasts sem getur valdið hröðum hjartslætti, svitakófi, stuttum andardrætti og öðrum líkamlegum einkennum.
Númer 4: Óúskýrðar breytingar á hægðum
Hvað telst til eðlilegra hægða er misjafnt á milli manna. Hafðu samband við læknir þinn ef hægðir þínar breytast frá það sem telst eðlilegt fyrir þig, eins og:
- Blóð- eða svartlitaðar hægðir
- Þrálátur niðurgangur eða hægðartregða
- Óúskýrðar þarfir að hafa hægðir
Breytingar á hægðum geta orsakast af bakteríusýkingu, eins og campylobacter eða salmónellu, vírus eða snýkjudýri. Aðrar ástæður geta verið iðrabólga (IBS) eða ristilkrabbamein.
Númer 5: Ráðvilla eða persónuleikabreytingar
Hafðu samband við lækni ef þú verður fyrir:
- Skyndilegri ráðvilltri hugsun
- Ráðvillu varðandi tíma og staðsetningu
- Skyndilegu vandamáli með einbeitingu eða minni
- Skyndilegri breytingu á persónuleika eða hegðun, t.d. að verða árásagjarn
Breytingar á hegðun eða hugsun getur verið vísir að mörgum vandamálum, meðal annars sýkingu, blóðleysi, blóðsykurskorti, vatnsskorti eða andlegum vandamálum. Einnig geta lyf stundum valdið ráðvillu eða persónuleikabreytingum.
Númer 6: Að verða óeðlilega saddur eftir að borða lítið
Ef þú ert saddur fljótar en vant er, eða eftir minna magn af mati en vanalega þá er viðeigandi að ræða það við læknir þinn. Þetta ástand getur einnig fylgt með . . . LESA MEIRA