Fara í efni

AÐVÖRUN: AÐEINS FYRIR HJARTGÓÐA - Tónleikar í Gamla bíói, þriðjudaginn 27.maí

Hjartagátt eru bráðskemmtilegir og hjartastyrkjandi tónleikar sem haldnir verða í Gamla bíói.
Hjartastyrkjandi tónleikar
Hjartastyrkjandi tónleikar

Hjartagátt eru bráðskemmtilegir og hjartastyrkjandi tónleikar sem haldnir verða í Gamla bíói, þriðjudaginn 27.maí kl.20.

Þar koma fram hjartagullin:

Bubbi Morthens

Ellen Kristjánsdóttir

Jakob Frímann Magnússon

Andrea Gylfadóttir

Helgi Björnsson

Berglind Björk Jónasdóttir

Geir Ólafsson

og hljómsveitin Thin Jim með Fabúlu og Páli Rósinkranz

Kynnir verður Guðmundur Steingrímsson harmonikkuleikari.

Maraþonmaðurinn og hjartaknúsarinn Pétur Jóhann fer með gamanmál.

Hjartagátt Landsspítalans við Hringbraut sinnir bráðaþjónustu við hjartasjúklinga og eru tónleikarnir haldnir til að vekja athygli á hvert skal leita ef grunur um bráð hjartavandamál er að ræða

Það er Hjartalíf sem stendur að tónleikunum og rennur miðasalan óskipt til söfnunarinnar sem ætluð er til að bæta aðbúnað Hjartagáttar.

Komdu, njóttu og láttu gott af þér leiða!