Fara í efni

Aukakíló á niðursettu verði

Bára Magnúsdóttir hjá JSB hefur í áratugi hjálpað konum að grennast og um þessar mundir eru hjá henni 50 konur, sem vilja léttast.
Aukakíló á niðursettu verði

Bára Magnúsdóttir hjá JSB hefur í áratugi hjálpað konum að grennast og um þessar mundir eru hjá henni 50 konur, sem vilja léttast.

Bára segir að til séu konur sem vilji bara fara í skurðaðgerðir til að léttast, eða láta sjúga úr sér fituna. En í raun og veru sé málið að innibyrða ekki meira en 14000 hitaeiningar á viku. Fyrsta skrefið til að grennast sé samt að taka ákvörðun. „Og þið eigið að hugsa, Það er góð ákvörðun að gera þetta núna. Þetta er einmitt rétti tíminn fyrir mig. Menn verða að hafa brennandi áhuga og ástríðu til að grennast og trúa því að þeir geti náð árangri“, segir Bára sem hefur áratugum saman séð aukakílóin fjúka af konunum sem til hennar koma. Hún segir að með því að mæta á námskeið hjá sér hafi konurnar ákveðið að léttast og hefur í raun bara þrjár reglur sem þær eiga að fylgja.

  • Borða, drekka vatn og hugsa grönn.
  • Aldrei að neita sér um nokkurn hlut.
  • Aldrei gera neitt sem þig langar ekki til.
Þetta úrskýrir Bára þannig að menn segi kannski eins og börnin...LESA MEIRA