Fara í efni

Mataræði barna með ADHD eða einhverfu

Mataræði barna með ADHD eða einhverfu

Hér er birt staða þekkingar hvað varðar mataræði sem meðferð fyrir börn með ADHD annars vegar og einhverfu hins vegar.

Einnig eru birtar hagnýtar ráðleggingar varðandi matvendni barna.

Höfundur efnis um AHDH og mataræði er dr. Bryndís Eva Birgisdóttir, dósent við Háskóla Íslands, og höfundur efnis um einhverfu og mataræði og um matvendni barna er dr. Anna Sigríður Ólafsdóttir, dósent við Háskóla Íslands.

Megin niðurstöður eru þær að fjölbreyttur og næringarríkur matur í samræmi við opinberar ráðleggingar um mataræði og reglulegir matmálstímar stuðla að góðu næringarástandi sem er mikilvægt fyrir vöxt og þroska og vellíðan allra barna.

Meðferð við ADHD og einhverfu með sérstöku mataræði er ekki ráðlögð nema þegar grunur er um óþol og ætti þá að vera í samráði við næringarráðgjafa og aðra fagaðila.

Hafa ber í huga að börn á einhverfurófi eru oft á tíðum matvandari en önnur börn og geta átt erfitt með að borða fjölbreyttan mat og er því sérstaklega mikilvægt að styðja við fjölbreytt fæðuval hjá þeim börnum og stuðla þannig að góðu næringarástandi þeirra.

Sjá nánar í eftirfarandi skjölum:

Mataræði barna með ADHD – staða þekkingar mars 2016 (PDF)
Mataræði barna með einhverfu – staða þekkingar mars 2016 (PDF)
Matvendni barna - staða þekkingar mars 2016 (PDF)

Hólmfríður Þorgeirsdóttir
Elva Gísladóttir

Nánari upplýsingar veita:

Um AHDH og mataræði:
Dr. Bryndís Eva Birgisdóttir
dósent við Háskóla Íslands

Um einhverfu og mataræði og matvendni:
Dr. Anna Sigríður Ólafsdóttir
dósent við Háskóla Íslands