Fara í efni

Ertu búin/n að kíkja inn á sykurmagn.is

Sykurmagn.is er vefsíða sem ætlað er að efla færni barna og foreldra þeirra í fæðuvali. Matvörur sem eru sérstaklega markaðssettar fyrir börn eru oft og tíðum ekki þær æskilegustu fyrir þau. Foreldrar geta hjálpað börnunum að læra að velja æskilegar vörur, t.d. sem innihalda minna af viðbættum sykri en aðrar sambærilegar vörur.
Ertu búin/n að kíkja inn á sykurmagn.is

Hollara val - Heilsutorg mun birta daglega sykurmagn í hinum ýmsu drykkjum og matvælum. 

Sykurmagn.is er vefsíða sem ætlað er að efla færni barna og foreldra þeirra í fæðuvali. Matvörur sem eru sérstaklega markaðssettar fyrir börn eru oft og tíðum ekki þær æskilegustu fyrir þau. Foreldrar geta hjálpað börnunum að læra að velja æskilegar vörur, t.d. sem innihalda minna af viðbættum sykri en aðrar sambærilegar vörur. 

Samnorræna merkið Skráargatið hjálpar einnig til við að velja hollari matvörur. Markmið með Skráargatinu er að hjálpa neytendum að velja hollari vöru, þ.e. með minni og hollari fitu, minni sykri, minna salti og meira af trefjum og heilkorni en sambærilegar vörur sem uppfylla ekki skilyrði til að bera merkið.


En hvað er  viðbættur sykur?

Sykur er náttúrulega til staðar í sumum matvælum, til dæmis sem mjólkursykur í mjólkurvörum og ávaxtasykur í ávöxtum og hreinum söfum. Um viðbættan sykur er hins vegar talað þegar sykri er bætt í matvörur við framleiðslu. Það er ekki bara hvítur sykur sem telst til viðbætts sykurs, heldur einnig hrásykur, púðursykur, melassi, síróp, agavesíróp, glúkósi (þrúgusykur), ávaxtasykur (frúktósi), og náttúrulegan sykur sem er til staðar í hunangi svo eitthvað sé nefnt. Hvaða nafn eða tegund af sykri þá er það viðbótin sem slík sem skiptir máli og almennt er ekki hollara að bæta í matvælin einni tegund sykurs umfram aðra.

Á vefnum eru birtar myndir sem sýna magn viðbætts sykurs í ýmsum matvælum.


Vefur þessi er á vegum Embættis landlæknis.