Fara í efni

Fjölskylduhús í samstarf við Heilsutorg.is

Heilsutorg.is og Fjölskylduhús hafa ákveðið að vinna saman að miðlun fræðsluefnis sem snertir fjölskylduna, meðvirkni, áföll og fíknir.
Samstarf fjölskylduhúss og heilsutorgs
Samstarf fjölskylduhúss og heilsutorgs

Heilsutorg.is og Fjölskylduhús hafa ákveðið að vinna saman að miðlun fræðsluefnis sem snertir fjölskylduna, meðvirkni, áföll og fíknir.

 

Heilsutorg.is er einn öflugasti vefur á Íslandi sem einbeitir sér að heilsutengdu fræðsluefni og ýmsum upplýsingum tengdum lífstíl.

Starfsmenn Fjölskylduhúss munu skrifa reglulega pistla sem birtast á vef Heilsutorgs.  Fjallað verður um margvíslegar hliðar samskipta og uppeldis og hvernig meðvirkni, fíknir og áföll hafa áhrif á daglegt líf margra.

Starfsmenn Fjölskylduhúss bjóða upp á ráðgjöf og samtalsmeðferð fyrir einstaklinga og fjölskyldur.

Auk þess gefst áhugasömum tækifæri á að sækja klukkustundarlangar kynningar á spennandi efni á borð við meðvirkni, stjórnsemi og eðlileg samskipti þeim að kostnaðarlausu út nóvember.

Einu sinni í mánuði er boðið upp á námskeið í meðvirkni sem notið hafa mikilla vinsælda.

Þá hefur einnig verið boðið upp á sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir börn og unglinga sem byggjast á hugrænni atferlismeðferð og leiklist.

Frekari fróðleik og pistla má finna á heimasíðu Fjölskylduhúss og nú einnig hjá Heilsutorgi.