Heilsan að hausti | Heilbrigt mataræði
Hvað er hreint mataræði ?
Þriðjudaginn 27. september kl. 17:30 mun Sólveig Sigurðardóttir fræða gesti um hreint matarræði og hvernig við berum okkur að við að elda hollan og góðan mat frá grunni.
Sólveig gerði gagngerar breytingar á lífi sínu árið 2012 og má fylgjast með henni og nýjum lífsstíl á Facebooksíðunni Lífstíll Sólveigar, þar sem hún póstar uppskriftum og ýmsum hugleiðingum um mat og annað.
Heilsan verður í fyrirrúmi í Borgarbókasafninu Sólheimum í haust og verður boðið upp á þrjá viðburði undir heitinu „Heilsan að hausti“. Umfjöllunarefnin eru heilbrigt matarræði, þriðjudaginn 27. september, núvitund, fimmtudaginn 27. október og að lokum jakkafatajóga fimmtudaginn 24. nóvember. Allir viðburðirnir hefjast kl. 17:30.
Dagsetning viðburðar:
Þriðjudagur, 27. september 2016
Staðsetning viðburðar:
Viðburður hefst:
17:30
Viðburður endar:
18:30
Af vef borgarbokasafn.is