HVAÐ SVO...?
Aðgerðir í framhaldi af málþingi Geðhjálpar og Olnbogabarna um börn og ungmenni með tvíþættan vanda
Salur Íslenskrar erfðagreiningar Sturlugötu 8 fimmtudaginn 12. mars kl. 8.15.
Fundarstjóri Helgi Seljan
08.15 – 08.30 Morgunverður.
08.30 – 08.45 Hvað svo...? – úrvinnsla úr málþingi Geðhjálpar og Olnbogabarna um börn og ungmenni með tvíþættan vanda.
Anna G. Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar.
08.45 – 09.00 Hvernig getur Barnaverndarstofa náð betri árangri í þjónustu við börn og ungmenni með geðrænan og vímuefnavanda?
Halldór Hauksson, sviðsstjóri meðferðarsviðs Barnaverndarstofu.
09.00 – 09.15 Hvernig getur BUGL náð betri árangri í þjónustu við börn og ungmenni með geðrænan og vímuefnavanda?
Ólafur Ó. Guðmundsson, yfirlæknir barna- og unglingageðlækninga, Landspítala-Háskólasjúkrahúss (BUGL).
09.15 – 09.30 Hugmyndir um hvernig hægt verði að koma til móts við börn og ungmenni með geðrænan og vímuefnavanda í vinnu við mótun þingsályktunartillögu um mótun geðheilbrigðisstefnu.
Guðrún Sigurjónsdóttir, formaður stýrihóps um mótun geðheilbrigðisstefnu í velferðarráðuneytinu.
09.30 – 09.45 Hvað felst í átaki lögreglunnar til að koma í veg fyrir að óæskilegir einstaklingar hýsi börn og ungmenni undir lögaldri?
Guðmundur Fylkisson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
09.45 – 10.00 Hvernig getur LSH lagt börnum og ungmennum með geðrænan og vímuefnavanda betur lið?
Kjartans J. Kjartanssonar, yfirlæknis fíknigeðdeildar Landspítala-Háskólasjúkrahúss.
10.00 – 10.15 SAMANTEKT.
Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig á ráðstefnuna með því að senda tölvupóst með nafni þátttakanda og nafni og kennitölu greiðanda á gedhjalp@gedhjalp.is. Aðgangseyrir kr. 1.500.