Jarðvegsgerlar í neysluvatni Reykjavíkur - frétt af vef ruv.is
Jarðvegsgerlar hafa mælst í kalda vatninu í Reykjavík.
Tvö sýni sem Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur tók 12. janúar stóðust ekki viðmið og því er mælst til þess að vatn sé soðið í flestum hverfum borgarinnar, sérstaklega fyrir þá sem eru viðkvæmir fyrir, eins og aldraða, ungbörn og fólk með undirliggjandi sjúkdóma. Aðrir þurfi ekki að hafa áhyggjur, samkvæmt upplýsingum frá Veitum.
Þetta á við um öll hverfi borgarinnar nema Grafarvog, Norðlingaholt, Úlfarsárdal, Kjalarnes auk Mosfellsbæjar, sem fá vatn frá öðrum svæðum í Heiðmörk þar sem ekki hefur mælst gerlafjöldi yfir viðmiðunarmörkum.
Í tilkynningu frá Veitum er talið líklegt að skýringin sé sú hlákutíð sem hafi verið að undanförnu að loknum löngum frostakafla. Við slíkar aðstæður geti yfirborðsvatn komist í grunnvatn og flutt með sér gerla. Ef gerlamagn í borholu mælist yfir mörkum sé vatnstöku úr henni hætt.
Þann 11. janúar sendi Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur út tilkynningu um að E. coli hefði mælst í neysluvatnssýnum ú rborholum í rekstri á vatnsverndarsvæðinu í Heiðmörk. Strax hafi verið gripið til viðeigandi aðgerða og holurnar teknar úr rekstri. Eins varð vatnsveður aftur 11. janúar og 14.janúar. Náið hafi verið fylgst með ástandi vatnsins síðan og ekki fundist E.coli eftir þetta, segir í tilkynningu frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.
Nú sé sú staða komin upp að búið sé að taka það margar holur úr rekstri Veitna að ekki sé hægt að anna vatnsþörf viðskiptavina verði þær fleiri. Því þurfi nú að nýta eina holu þar sem fjöldi jarðvegsgerla hafi mælst yfir mörkum. Í þeirri holu hafi ekki fundist E. coli gerlar.
„Sýni verða tekin áfram daglega, bæði úr borholum af Veitum og af Heilbrigðiseftirlitinu úr dreifikerfinu, þar til ástand neysluvatnsins er viðunandi. Tilkynnt verður þegar ástand vatnsins stenst reglugerð nr. 536/2001 en skv. henni er um óeðlilegt ástand að ræða og er vísbending um að ofanvatn hafi borist í vatnið“, segir í tilkynningu frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.
Leiðrétting. Í fyrri útgáfu var ranglega greint frá því að E.coli gerlar hefðu fundist í köldu vatni í Reykjavík. Hið rétta er að jarðvegsgerlar fundust.
Af vef ruv.is